Mánudagur, 18. febrúar 2019
Trump elskar Ísland og Austur-Evrópu, hatar ESB
Trump vill tortíma Evrópusambandinu, segir utanríkissérfræðingur vinstriútgáfunnar Guardian. Trump og valdamenn í Washington hygla Austur-Evrópuríkjum í ESB (og Íslandi, sem fékk heimsókn til að bæta frjálslynda vanrækslu, ódýrt af Guardian að tak það ekki fram) til að valdefla þjóðernissinna í sambandinu.
Trump hatast við alþjóðahyggju og ESB er miðstöð alþjóðahyggjunnar. New York Times heggur í sama knérunn og Guardian, segir samband Trump og ESB markast af gagnkvæmri fyrirlitningu.
Evrópusambandið er á milli steins og sleggju, Bandaríkjanna og Rússlands. Hvað gerir helsti leiðtogi sambandsins, Angela Merkel kanslari Þýskalands? Jú, hún biður um margpóla heim þar sem ekkert eitt ríki (les: Bandaríkin) setur einhliða skilmála.
Merkel setti fram þessa skoðun á öryggisráðstefnu í Munchen um helgina.
Gráglettni örlaganna hagar því svo til að á sömu ráðstefnu fyrir 12 árum setti annar þjóðarleiðtogi fram ósk um margpóla heim. Sá heitir Pútín.
Evrópusambandið hlustaði ekki á Pútín. Þvert á móti tók ESB fullan þátt, með Bandaríkjamönnum, að einangra Rússa á alþjóðavettvangi. ESB var giska sátt við einpóla heimsvald á meðan sama alþjóðahyggjan réð ferðinni í Washington og Brussel.
En nú er Snorrabúð stekkur og berin súr.
Íslendingar geta þakkað það ríkisstjórn Sigmundar Davíðs að setja ESB-umsókn Samfylkingar kirfilega ofan í skúffu. Það hefði verið napurt hér á miðju Atlantshafi að sitja fast í ESB og fá yfir sig bandaríska andstyggð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.