Mánudagur, 18. febrúar 2019
Samfylking, systurflokkur og Brexit
Breski Verkamannaflokkurinn er systurflokkur Samfylkingar. Meginástæðan fyrir klofningi systurflokksins er Brexit, úrsögn Breta úr Evrópusambandinu.
Klofningshópurinn telur að forysta Verkamannaflokksins hefði átt að hafna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Brexit og koma í veg fyrir úrsögn úr ESB.
Samfylkingin komst ekki á það stig að klofna vegna ESB. Örlög flokksins gætu þó orðið verri; að sitja uppi til langframa með ónýtt stefnumál.
Sjö hætta í Verkamannaflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.