Sunnudagur, 10. febrúar 2019
ESB ógnar tilvist stjórnmálaflokka
Báðir kjölfestuflokkar Bretlands, Verkamannaflokkurinn og Íhaldsflokkurinn, standa frammi fyrir klofningi vegna úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu, Brexit.
Evrópusambandið er stórhættulegt pólitískum stöðugleika aðildarríkjanna. Valdheimildir sem ESB hefur yfir lífsbjörg aðildarríkja eru miskunnarlaust notaðar til að grafa undan lögmætum stjórnvöldum.
Landamæraeftirlit milli Írlands, sem er ESB-ríki, og Norður-Írlands, sem er hluti Bretlands, er gert að óleysanlegum hnút. Þó eru fyrirmyndir að landamæraeftirliti milli Svissi og ESB-ríkja annars vegar og hins vegar landamæri Noregs og Svíþjóðar.
En af hálfu ESB er ekki vilji til að leysa deiluna. ESB elur á sundrungu í Bretlandi enda má sambandið ekki til þess hugsa að Brexit heppnist. Það skapar slæmt fordæmi, aðrar þjóðir gætu fylgt fordæmi Breta.
Breyttur samningur ekki í boði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.