Laugardagur, 19. janúar 2019
RÚV: bara íslenska
Fyrsta frétt RÚV-Útvarps í aðalfréttatíma var að vefsíður opinberra stofnana væru ,,bara á íslensku." RÚV lítur á þjóðtunguna sem leiða sérvisku.
Fréttin var löng og ítarleg, studdist við tvo fjölmenningarsinna sem heimildir. Báðir töldu lélega þjónustu við útlendinga, Pólverja sérstaklega, að hafa ekki vefsíður á ensku. Pólverjar, á hinn bóginn, hafa ekki ensku sem móðurmál og sumir þeirra kunna ekkert í ensku.
Hvorki heimildamönnum RÚV né fréttmanninum datt í hug að velta þeirra spurning upp hvort útlendingarnir ættu ekki að læra íslensku, svona fyrst þeir eru hér á annað borð. ,,Bara íslenska" er of ómerkilegt tugumál, að áliti RÚV, til að ætla útlendingum hér á landi að læra.
Athugasemdir
Akkurat! Eins og aðrar þjóðir þjónusta Íslendinga allstaðar þar sem þeir kjósa að setjast að!
Helga Kristjánsdóttir, 20.1.2019 kl. 00:57
Pólverjar eru margir duglegir við að læra íslenzku, og það þarf að auka þá kennslu og hafa hana fría fyrir þá sem eru greinilega setztir hér að, sem og að gera vissa lágmarksþekkingu í íslenzku að skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar (þvert gegn þeirri fráleitu ákvörðun Alþingis --- í hlýðni við "góða fólkið"! -- þegar tveimur stórum og féþungum fjölskyldum í Balkanríki voru send íslenzk vegabréf gratís!).
En ég er fylgjandi því, að Rúv setji upp vefsíðu fyrir Pólverja, ráði pólskan fréttamann og hafi t.d. fréttir á pólsku á Rás 2 kl. 15 (þar er nú enginn fréttatími lengur kl.15), einu sinni að morgni og svo aftur (endurtekna samantekt?) t.d. kl. 20 eða 22. Og þar má m.a. gefa sérstakan gaum að fréttum frá Póllandi, jafnvel með innskotum mikilvægra viðtala úr pólsku útvarpi. Þetta á ekki að þurfa að draga neitt úr vilja manna til að læra íslenzku (þarna væri líka hægt að auglýsa námskeið), en svo mikil hreyfing er á Pólverjunum, að margir nýkomnir eru hér oft á köldum klaka upplýsingalega séð.
Annars er merkilegt að þetta vellríka RÚV, með sína 3,7 milljarða árlega úr vösum okkar (nauðungaráskriftina) hefur ekki lengur efni á einföldum fréttatímum fyrir ferðamenn á ensku, eins hér voru þó um árabil. Hítin heimtar sitt í Efstaleiti. Hvernig myndi þetta s.k. "öryggistæki þjóðarinnar" gagnast útlendingum, ef hér kæmi upp eldgos, jarðskjálftar eða flóð sem setja ferðamenn í hættu?
Jón Valur Jensson, 20.1.2019 kl. 03:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.