Föstudagur, 7. desember 2018
Þingmenn kjósa múgræði, hafna lýðræði
Þingmenn eru fulltrúar almennings á löggjafasamkomunni, kosnir í lýðræðislegum kosningum á fjögurra ára fresti eða skemur.
Nú vill meirihluti þingmanna, samkvæmt leynilegri könnun Fréttablaðsins, að sex þingmenn segi af sér til að þóknast fári í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum.
Þeir þingmenn sem vilja ryðja alþingi vegna umræðu út í bæ eru illa að sér í grunnreglum lýðræðisins. En því betur þrífast sömu þingmenn í múgræðinu.
Vilja að sexmenningarnir segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Virðing Alþingis eykst ekki við að þar séu stofnaðir eineltisklúbbar.
Ragnhildur Kolka, 7.12.2018 kl. 12:10
Vel mælt, Ragnhildur, sbr. þetta mál og líka eineltið sem Logi Einarsson hefur haft forgöngu um: að útiloka Miðflokkinn frá samráði stjórnarandstöðuflokkanna. En hann er nú reyndar svo útfarinn og æfður í einelti frá áhrifatíma sínum í bæjarstjórn Akureyrar, þegar hann beitti sér með öðrum fyrir Berufsverbot gegn saklausum kennara Brekkuskóla og lét aldrei af eineltinu þótt allir dómar gengju honum í mót, en Snorri Óskarsson er með hreina æru eftir alla þá ljótu atsókn.
Já, er þetta kannski bara krónískur kækur hjá Loga, þessi eineltishneigð?
Jón Valur Jensson, 7.12.2018 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.