Laugardagur, 6. október 2018
Hrunið, byltingin og gagnbyltingin
Hrunið 2008 leiddi til byltingartilraunar vinstrimanna. Samfylkingin tók að sér að sprengja ríkisstjórn Geirs H. Haarde þá um veturinn gegn því að Vinstri grænir samþykktu að styðja ESB-umsókn og að farga stjórnarskrá lýðveldisins. Vorið 2009 náðu þessir flokkar meirihluta á alþingi og ríkisstjórn Jóhönnu Sig. komst á koppinn.
Herfræði byltingarstjórnarinnar var þessi: Ísland er ónýtt og þarf að ganga í Evrópusambandið. Stjórnarskráin er ónýt og byltingarráð (stjórnlagaráð) var fengið til að semja nýja. Föllnu bankarnir voru gefnir útlendingum. Íslendingar sjálfir voru ónýtir; þess vegna skyldu þeir borga Icesave-reikninga einkabanka í 40 ár og lifa við vénúselískan sósíalisma á meðan, auðvitað undir forsæti vinstrimanna.
Sérfræðinga- og bloggsveit vinstrimanna hamaðist á þjóðinni með byltingarboðskapinn. En almenningur sá við þeim byltingaróðu og töfraði fram seinna óskabarn þjóðarinnar; Sigmund Davíð sem sagði nei, við borgum ekki Icesave og nei, við látum ekki almenning bera byrðarnar - heldur þrotabú bankanna.
Þjóðin gerði Framsóknarflokk Sigmundar Davíðs stærsta flokk landsins í kosningunum 2013. Byltingarflokkarnir fengu skell. Samfylkingin hrapaði úr 30 prósent fylgi í 12,9 prósent og Vinstri grænir misstu meira en helming atkvæða sinna, fóru í 10,9 prósent.
Gagnbylting Sigmundar Davíðs heppnaðist fullkomlega. ESB-umsóknin dó drottni sínum, skemmdarverkinu á stjórnarskránni linnti, Icesave-fjötrum var hnekkt, heimilin fengu leiðréttingu og bankarnir voru teknir úr höndum útlendinga til ábata fyrir Íslendinga.
Vinstrimenn brjáluðust. Þeir gerðu út lygnustu fréttaveitu norðan Alpafjalla, RÚV, til höfuðs óskabarninu. Sigmundur Davíð var plataður í viðtal á fölskum forsendum og Helgi Seljan RÚVari líkti gagnbyltingarhetjunni við Pútín og Gaddaffi í frægum sjónvarpsþætti kenndum við Panama.
Sigmundur Davíð féll með ríkisstjórn sinni 2016. En líkt og Nelson við Trafalgar sigraði hann bæði stríðið og orustuna: lýðveldinu var borgið, þökk sé óskabarninu öðrum fremur.
Eftir 2016 var stjórnmálaóreiða þangað til að Sjálfstæðisflokkur og illskásta vinstrið gerðu vopnahlé og mynduðu ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
Mannlífið á fyrstu mánuðum eftir hrun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Dottandi í húsaskjóli yfir láréttri rigningu lemja rúðurnar,fyllist ég aðdáun yfir framtaki ungra háskólapilta sem kðlluðu sig (Indipendence,þeirra á meðal var Sigmundur Davíð ef ég man rétt. Nýlega hlustaði ég á fréttamann útv.Sögu Hauk Hauksson,ræða við einn þeirra,Ólaf háskólanema(missti af byrjuninni man því miður ekki föðurnafnið),sem lýsti hvernig þessi hópur varð til.Hvernig þeir lögðu í tímafreka vinnu í netsambandi fóru á fund útlendinga sem veittu upplýsingar,staðráðnir að hnekkja órétti kröfuhafa Breta og ESB. Það má því nærri geta hvað þetta tók mikinn tíma frá náminu auk útláta.Þjóðin má vera stolt af þessum ættjarðar vinum.
Helga Kristjánsdóttir, 6.10.2018 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.