Fimmtudagur, 16. ágúst 2018
Trójuhesturinn, fullveldið og Sjálfstæðisflokkurinn
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli í vor á þeirri staðreynd að Evrópusambandið reynir jafnt og þétt að útvíkka EES-samninginn og græfi þar með undan fullveldi okkar.
Evrópusambandið reynir núna að fá íhlutunarrétt í virkjanamál Íslendinga, með svokölluðum orkupakka ESB. Valdhafarnir í Brussel segjast aðeins ætla að grípa inn í fullveldisrétt okkar ef ágreiningur rís um ráðstöfun orkunnar. Í reynd getur ESB búið til ágreining hvenær sem vill og í framhaldi bæði ákært og dæmt um íslensk málefni.
EES-samningurinn var upphaflega gerður fyrir þau ríki sem voru á leið inn í Evrópusambandið. Þótt fyrir liggi að hvorki Ísland né Noregur, sem eru meginaðilar samningsins á móti ESB, eru á leið inn í sambandið er ekkert gert til að breyta samningnum til samræmis. Þvert á móti er stöðugt reynt að færa valdheimildir frá Íslandi og Noregi til ESB.
Embættismenn í Brussel nota EES-samningin í reynd til að hola að innan fullveldi Íslands. EES-samningurinn er Trójuhestur Brusselvaldsins innan borgarmúra Íslands.
Forysta Sjálfstæðisflokksins flýtur að feigðarósi með fullveldið á meðan EES-samningurinn fær að bólgna út og yfirtaka stöðugt fleiri innanríkismál Íslands.
Tillaga Styrmis Gunnarssonar um félag fullveldissinna innan Sjálfstæðisflokksins segir sína sögu. Það þarf að spyrna við fótum.
![]() |
Sjálfstæðisfélag um fullveldismál tímabært? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég tek undir allt sem hér er sagt.
Ragnhildur Kolka, 16.8.2018 kl. 20:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.