Endalok Nató

Trump eyðileggur ekki Nató. Pólitík en ekki Trump marka endalok Nató. Bandalagið hefur á síðustu árum verið pólitískt verkfæri Evrópusambandsins að víkka út áhrifasvæði sitt í Austur-Evrópu. Nató er hernaðarbandalag og sem slíkt þolir það ekki að taka á sig pólitískar skyldur.

Í Spiegel er sagt að leiðtogafundur Nató í Brussel marki upphaf endaloka bandalagsins. Greiningin í Spiegel nefnir Trump ekki á nafn. Í stað þess er spurt: myndu Nató-ríkin koma Tyrklandi til varnar ef Kúrdar réðust inn í landið? Tyrkland er Nató-ríki en svarið við spurningunni er ekki ótvírætt. En ef Hvít-Rússar réðust inn í Pólland, sem er Nató-ríki. Aftur er svarið loðið.

Nató var stofnað fyrir tæpum 70 árum til að verja Vestur-Evrópu fyrir kommúnisma, yfirtöku Sovétríkjanna. En Sovétríkin og Varsjárbandalagið sem kommúnísk útgáfa af Nató eru ekki lengur til. Án sameiginlegs óvinar skortir Nató samheldni.

Trump leikur sér að mótsögnum Nató-ríkjanna. Samkvæmt Guardian gagnrýnir hann Þjóðverja að vera fangar Rússa í orkumálum en treysta alfarið á hervarnir Bandaríkjanna gegn einmitt Rússum. Hvers vegna ættu Bandaríkin að niðurgreiða hervarnir Þjóðverja gegn Rússum um leið og Þjóðverjar bregða sjálfir rússneskri orkusnöru um háls sér?

Rússland er þykjustuóvinur Evrópusambandsins. Rússland telur um 140 milljónir íbúa, ESB er með 500 milljónir. Rússneska efnahagskerfið er um 15 prósent af efnahagskerfi ESB. Rússland, ólíkt Sovétríkjunum, flytur ekki út alþjóðalega hugmyndafræði.

Með því að gera Rússland að þykjustuóvini mjólka Þýskaland og Evrópusambandið ríkissjóð Bandaríkjanna til að fjármagna útþenslu ESB í austurátt þar sem Nató er hnefinn á bakvið pólitíkina.

Nató stendur ekki undir sér sem pólitískt bandalag. Til þess eru hagsmunir aðildarþjóðanna 29 of ólíkir. Nú þegar er Nató meira nafn en hernaðarmáttur. 


mbl.is Spennuþrunginn fundur NATO í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Já Páll þetta er stærsta joke sögunar og gaman að sjá Stoltenberg þegar hann gersamlega mátaði NATO á Morgunkaffis fundi. Gaman verður að sjá Merkel svara.

Valdimar Samúelsson, 11.7.2018 kl. 10:07

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

það vantar meira inn í umræðuna á LANDAKORTUM 

hvar mesta ógnin sé við NATÓ-ríkin í réttri forgangsröðun:

1.Eru það rússneskir landgönuliðar við landamæri Finnlands og rússa?

2.Rússneskar flugvélar í lofthelgi Breta?

3.Rússneskir kafbátar í norður -Atlantshafi?

Eða hvað_________________________?

Jón Þórhallsson, 11.7.2018 kl. 11:47

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Rússar hafa aldrei hopað Evrópu né sýnt áhuga á að fara í stríð við þá.

Valdimar Samúelsson, 11.7.2018 kl. 12:05

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er þá einhver þörf fyrir okkar veru  í NATÓ;

hvaða lönd væru líkleg til að sækja hér að með hervaldi

ef að rússar hyggjat ekki ráðast á okkur ða fyrra bragði?

Jón Þórhallsson, 11.7.2018 kl. 12:12

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Jón, 

Í allri þessari rússafóbíu og nýja kaldastríðsáróðri gegn Rússlandi þá lítur þetta svona út eftir hrun Berlínamúrsins, og síðan vilja þeir í dag þrengja ennþá meira að Rússlandi og Kína, fyrir þeirra New World Order (NWO). 


Related image

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 11.7.2018 kl. 15:22

6 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Dýr verður Rússinn sem aldrei kom..

Guðmundur Böðvarsson, 11.7.2018 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband