Mánudagur, 18. júní 2018
Höfðingjadirfska þjóðarsálarinnar
Ekki er sjálfsagt að Ísland spili á heimsmeistaramóti vinsælustu íþróttar veraldar. Enn síður að þjóðarliðið nái árangri á þeim vettvangi. Stigið á móti Argentínu var árangur, þótt flestum þætti klént ef þau verða ekki fleiri.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra nefndi einn þátt þjóðarsálarinnar sem án efa er hluti skýringarinnar á árangri landsliðsins. ,,Höfðingjadirfska" er samtímalýsing á Elku Björnsdóttur alþýðukonu sem skrifaði dagbókarfærslu fyrir hundrað árum og Katrín gerði að umtalsefni í lýðveldisávarpinu.
Höfðingjadirfska er að Ísland geri sig gildandi á sama vettvangi og Ronaldo, Messi og félagar. Þessi þáttur þjóðarsálarinnar skilar okkur árangri sem samkvæmt tölfræði ætti ekki að vera mögulegur.
Höfðingjadirfska er vandmeðfarinn eiginleiki. Hún getur á augabragði breyst í hjárænulega afdalamennsku ef ekki fylgir henni innistæða raunsæis, vinnusemi og þrautseigju. Við sáum það þegar Ísland ætlaði sér sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og einnig þegar glæpavæddir bankamenn töldu stjórnvöldum trú um að landið gæti orðið alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Höfðingjadirfska og oflátungsháttur eru hvort tveggja drættir í þjóðarsálinni og eiga það til að víxlast.
Góð áhrif á þjóðarsálina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Lífið er línudans og stundum tekst okkur að halda jafnvæginu. Það gerðist laugardaginn 16. júní.
Ragnhildur Kolka, 18.6.2018 kl. 13:01
Þetta var grís að mínu viti
Halldór Jónsson, 18.6.2018 kl. 17:44
Ekki er grís mögulegur nema að hann sé tekinn að undirlagi vitsmunanna,les;"Davíð og Golíat".
Helga Kristjánsdóttir, 19.6.2018 kl. 03:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.