Mánudagur, 11. júní 2018
Sérfræðikostnaður þingflokka og huldublaðamennska
Þingflokkar fá ótaldar milljónir króna árlega frá ríkinu til að kaupa ,,sérfræðiþjónustu." Hluti af þessum peningum fer í að kaupa almannatengslaþjónustu sem vefmiðlar selja undir formerkjum blaðamennsku.
Ekki fyrr en þingflokkum verður gert að opna bókhaldið og sýna hvert sérfræðingakostnaðurinn rennur er hægt að koma í veg fyrir huldublaðamennsku af þessu tagi.
Flokkar eins og Píratar, Viðreisn og Samfylking hljóta að ríða á vaðið og opna bókhald þingflokkanna. Þarf nokkuð að vera á huldu?
Nafnlausar herferðir ekki ólöglegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Huldublaðamenn leynast víða.
Guðmundur Ásgeirsson, 11.6.2018 kl. 22:16
Það getur varla verið vandamál fyrir flokkana að greina frá kaupum á sérfræðiþjónustu. Þeir eru allir sammála um gegnsæi vinnubragða.
Ragnhildur Kolka, 11.6.2018 kl. 22:19
Það sem forsætisráðuneytið vill er að afnema tjáningafrelsið. Á tímum ógæfustjórnar Jóhönnu reyndi stalínistinn Ömmi að ritskoða internetið. Honum tókst það ekki þá og Katrínu mun ekki takast það nú.
Aztec, 11.6.2018 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.