Mánudagur, 14. maí 2018
Arabar og útflutningur óreiðu
Flutningur sendiráðs Bandaríkjanna frá Tel Aviv til Jerúsalem skapar alþjóðlega óreiðu, segir samningamaður Palestínuaraba í fréttaviðtali.
Arabar neita í 70 ár að viðurkenna Ísraelsríki. Ríkisstjórnir Arabaríkja hóta Ísrael reglulega gereyðingu. Í miðausturlöndum er Ísrael eina lýðræðisríkið og stingur í stúf við ríkjandi stjórnmálamenningu múslímaríkja, sem er allt annað en lýðræðisleg.
Aröbum gengur erfiðlega að lifa í sátt. Innanlandsfriður í Arabaríkum er ýmist ótryggur eða alls ekki fyrir hendi; Írak, Sýrland, Jemen og Líbía eru vettvangur borgarastyrjalda.
Hótun samningamanns Palestínuaraba er í takt og tón við aðalútflutning Araba, næst á undan olíu; óreiðu.
Stór dagur fyrir Ísrael | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Lýðræði getur aðeins þrifist við ákveðið siðferðisstig.
Hvaða siðferðisstig getur ríkt í ríkjum sem byggja sitt stjórnkerfi og mannréttindi á gömlum skræðum frá fornöld?
Getur nokkurt lýðræði myndast í áminnstum löndum? Yrði áfram lýðræði á Íslandi ef hingað flyttust tugþúsundir Múhameðsfólks?
Halldór Jónsson, 14.5.2018 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.