Miðvikudagur, 9. maí 2018
Byltingaröflin kljúfa verkalýðshreyfinguna
Almenna verkalýðshreyfingin er sterk þegar hún stendur saman. Byltingaröflin, sem náð hafa undir sig nokkrum stórum verkalýðsfélögum, boða hatrömm verkföll. Afleiðingin verður klofningur.
Í einu af róttæku félögunum, VR, eru meðallaun grunnlauna 622 þús. kr. á mánuði en heildarlaun 668 þús. kr. að meðaltali. Þetta eru hærri laun en kennarar í grunn- og framhaldsskólum eru með. Byltingaröflin geta vælt út í eitt en tilfellið er að laun alls þorra almennings eru vel frambærileg upp í það að vera góð.
Byltingarfélögin munu klofna. Spurningin er hvort þau verði áður búin að kljúfa verkalýðshreyfinguna. Allir tapa, líka byltingarmennirnir, en þeim er hjartanlega sama.
Framsýn fordæmir myndband ASÍ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.