Laugardagur, 14. apríl 2018
Sprengjur sem pólitísk skilaboð eða stórveldastríð
Deilur stórveldanna í Sýrlandi eru með einkenni sem gætu leitt til heimsstyrjaldar, skrifar Simon Jenkins í Guardian. Gagnkvæmar ásakanir um villimennsku, hótanir og núna sprengjuregn gætu verið undanfari stigmagnandi hernaðarátaka.
Bjartsýnt sjónarhorn á sprengjuárásir Bandaríkjanna, Breta og Frakka er að þær séu pólitísk skilaboð um að bandamaður Rússa í Sýrlandi, Assad forseti, hagi sér innan marka velsæmis í borgarastríðinu.
En það er ekki sérstök ástæða til bjartsýni. Borgarastríð eru í eðli sínu villimannsleg og átökin í Sýrlandi hafa staðið í sjö ár. Pólitísk lausn er ekki í sjónmáli. Því miður.
Rússar krefjast neyðarfundar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Menn eiga að hætta þessu "heimstyrjaldar" bulli ... það er enginn hætta á heimstyrjöld. Ekki einu sinni þó Bandaríkin eða Rússar myndu nota einhverja atóm bombu eða tvær.
Þegar þú spilar skák, ertu ekki á höttunum eftir að "drepa" Kónginn ... heldur máta hann. Þegar þú spilar tic-tac-toe er markmiðið að hindra andstæðingin og ná "stalemate".
Allar hugsanir manna um "heimsendi" er bara barnalegar óskir trúarofstækismanna.
Örn Einar Hansen, 14.4.2018 kl. 09:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.