Fimmtudagur, 12. apríl 2018
EES er tvöfaldur lýðræðishalli
Ef æ stærri hluti laga og reglna sem gilda hér á landi kemur frá embættismönnum í Brussel sem starfa í þágu annarra hagsmuna en Íslands myndast hér á landi vaxandi lýðræðishalli.
Við tengjumst embættismönnunum í Brussel í gegnum EES-samninginn, sem upphaflega var gerður fyrir verðandi ESB-ríki. Á seinni árum ber á því að Norðmenn, nánar tiltekið norskir embættismenn, noti EES-samninginn til að seilast til áhrifa hér á landi.
Nú liggur fyrir að Ísland er ekki á leið inn í Evrópusambandið í fyrirsjáanlegri framtíð. Eina rökrétta niðurstaðan er að við segjum upp EES-samningnum.
Augljós hætta á lýðræðishalla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Alveg sammála hverju orði. Sem betur fer á þingið að skoða EES samninginn og verður fróðlegt að fylgjast með hvað kemur út úr því.....
Jóhann Elíasson, 12.4.2018 kl. 14:28
Nei við eigum ekki að segja honum upp heldur sleppa því að bæta í hann. Norðmenn verða þá bara að eiga það við sig hvað þeir gera :)
Gunnar Sigfússon, 13.4.2018 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.