Sunnudagur, 25. mars 2018
Listin og sagan - Nató og Rússland
Nató-listaverkinu við Bændahöllina var gert í tilefni af lokum kalda stríðsins, þegar leit út fyrir að Bandaríkin/Nató og Rússland yrðu samstarfsaðilar eftir að hafa verið óvinir frá lokum seinna stríðs.
Listaverkið var afhjúpað ári áður en Bandaríkin, með stuðningi Nató-ríkja, héldu í herleiðangur til Írak. Rússar voru eðlilega ekki hafðir með í ráðum, enda á brauðfótum, ekki lengur stórveldi. Þar var nýkominn til valda maður sem freistaði þess að bjarga landinu úr klóm auðmanna. Hann hét Pútín og átti full í fangi með að forða Rússlandi frá fjárhagslegu og siðferðilegu hruni vesturlandavæðingar.
Innrásin í Írak var vestrænt verkefni, fyrsta skrefið í áætlun um að gera miðausturlönd að vestrænum skjólstæðingi Bandaríkjanna og Evrópu. Verkefnið mistókst, kveikti ófriðarbál sem enn logar glatt hálfum öðrum áratug síðar.
Vesturveldin, einkum Bandaríkin, sannfærðust á síðasta áratug liðinnar aldar að sigur í kalda stríðinu gæfi þeim siðferðilegan rétt til að breyta heiminum í sína mynd. Sannfæringin þvarr ekki þótt Íraks-verkefnið mistækist. Úkraína komst á dagskrá vesturvaldanna á öðrum áratug aldarinnar. Skipulega var grafið undan forseta sem þótti of hliðhollur Rússlandi Pútín, sem fór að rétta úr kútnum. Forseti Úkraínu var flæmdur úr embætti og borgarastyrjöld tók við sem ekki sér fyrir endann á.
Listaverkið við Bændahöllina minnir okkur á tækifæri í alþjóðastjórnmálum sem fór forgörðum. Hvort heldur listaverkið sé gljáandi eða tjargað og fiðrað er það aðeins neðanmálsgrein í tröllasögu alþjóðastjórnmála eftir kalda stríðið. Verkið verður aldrei til friðs, segir listamaðurinn Hulda Hákon, höfundur Tuttugu loga. List sem aldrei er til friðs er snöggtum sannari en friðsöm list.
Telur að verkið verði aldrei til friðs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll vertu
Hvað þýðir að forseti Úkraínu hafi verið flæmdur úr embætti? Viktor Yanukovych var og er glæpamaður sem fólkið Úkraínu hefði komið frá völdum ef hann hefði ekki látið sig hverfa úr landi þegar hann missti stuðning þings og stjórnar. Yanukovych var m.a.s með nokkra banka sem ekkert gerðu annað en þvætta peninga. Ég kom nokkrum sinnum á Maidan torg meðan fólkið í landinu mótmælti stjórn þjófannna sem sat þá. Enginn þarf að vera hissa á að fólkið hafi "grafið undan forseta sem þótti of hliðhollur Rússlandi Pútíns".
"Borgarastyrjöldin" sem þú nefnir svo er engin borgarastyrjöld. Erlendur innrásarher hefur hernumið austurhéröð Úkraínu og Krím. Svo einfalt er það.
Einar Sveinn Hálfdánarson, 26.3.2018 kl. 00:16
Einar, þetta er engan veginn rétt. Vissulega var Yanukovych "corrupt", á því var enginn vafi. Núverandi stjórn Ukraínu er aftur á móti bara "nasista" stjórn, og er Evrópu til skammar. Hvað varðar Krím, þá er Krím eitt af stöðum sem "veittur" var af hálfu Sovétríkjanna, og eins og öll önnur "landamæri" innan Sovétríkjanna, þá lauk þeim á sama tíma og samningar milli ríkjanna var rofinn. Hvað varðar Dónetsk, þá er enginn innrásar her þar ... þetta eru íbúarnir sjálfir, sem að mestu leiti voru og eru Rússar.
Síðan, hvað varðar borgarastyrjöldina. Þá hófst hún með því að Hollenska Shell, borgaðir miljarða Evra fyrir að fá gas svæði sem er í austurhluta Ukraínu. Eitthvað sem Rússar þá, og nú, eru ekki tilbúnir að gefa Evrópu. Og þegar maður er að tala um "fólkið", þá er maður eins og þú á afskaplega vafasömum fótum, þar sem þú neitar "fólkinu" í Dónetsk og Krím að velja sjálft, að tilheira sínum eigin Rússneskum uppruna.
Glæpamennirnir í þessu máli, eru Hollendingar og hugsanlega Soros. Sem borgað hafa miljarða til að koma á Styrjöld í Evrópu.
Örn Einar Hansen, 26.3.2018 kl. 05:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.