Miðvikudagur, 21. mars 2018
Noregur vill stjórna Íslandi - í þágu ESB
Raforkumálum Íslands verður stjórnað af Evrópusambandinu ef ACER-stofnunin verður að veruleika. Norskir embættismenn, sem eru upp til hópa ESB-sinnar, eru tilbúnir að framselja völdin yfir norskri raforku til Brussel og fá til þess stuðning frá Hægriflokknum, sem situr í ríkisstjórn.
Framsal á raforkunni fer í gegnum EES-samninginn, sem Ísland á aðild að. Norskir embættismenn telja sig geta ráðskast með íslenska hagsmuni og framselt þá til ESB.
Íslensk stjórnvöld eiga á augabragði að senda þeim norsku skilaboð: raforkan á Ísland fer ekki undir stjórn ESB. Í framhaldi eigum við að segja upp EES-samningnum.
Túlkun norskra embættismanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála. Merkilegt að íslensk náttúruverndarsamtök hafi ekki kveikt á perunni.
Kolbrún Hilmars, 21.3.2018 kl. 14:57
Já, og hvers vegna heyrist ekki boffs í VG?
Ragnhildur Kolka, 21.3.2018 kl. 17:28
Sæll Páll,
það þarf ekki að segja upp EES út af Orkumálapakkanum, það þarf bara að sleppa að bæta honum (þ.e þeim hluta sem snýr að ACER) inn í pakkann. T.d hefur Lichtenstein sleppt að innleiða hann að mestu leiti hjá sér. Einu tilskipnairnar sem "þarf" að innleiða í lög eru tilskipanir sem byggjast á fjórfrelsinu (frjálst flæði, þjónustu , fjármagns, (launa)fólks og vara). Orkupakkinn er ekki inní því.
Gunnar Sigfússon, 21.3.2018 kl. 18:08
Svona til upprifjunar, meira að segja þeir sem stýrðu aðildarviðræðum við ESB vildu ekki þennan pakka (þ.e fá undanþágu frá honum)
https://www.stjornarradid.is/media/utanrikisraduneyti-media/media/ESB/samningskaflar/15/15.-kafli-samningsafstada.PDF
Í öðrum minnispunktum tengt þessu kemur fram að alls EKKI eigi að innleiða þetta í EES-samninginn heldur bíða eftir að fá undanþágu í aðildarviðræðum.
Spurningin er af hverju þykjast menn þurfa að gera þetta núna? Þótt Norðmenn innleiði þetta þurfum við ekki að gera það. Nema ef einhverjir vilja komast ó ódýr lán til að byggja sæstreng?
Gunnar Sigfússon, 21.3.2018 kl. 18:28
Bjarni búinn að fatta þetta :)
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/03/22/orkumal_islands_ekki_mal_esb/
Gunnar Sigfússon, 22.3.2018 kl. 14:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.