Sunnudagur, 18. mars 2018
Sjálfstæðsiflokkur og Framsókn: sama stefna gagnvart EES
Stjórnmálaályktanir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins eru í sama tón og ályktanir Framsóknarflokksins um málefni er varða EES-samninginn, sem er ramminn um samstarf Íslands og Noregs við Evrópusamstarfið.
Báðir flokkar vilja gagnrýna endurskoðun á EES-samningunum, sem er frá síðustu öld og gerður fyrir þjóðir á leið inn í Evrópusambandið. En hvorki Ísland né Noregur verða aðildarríki ESB í fyrirsjáanlegri framtíð. Þar af leiðir ætti að endurskoða EES, jafnvel að hætta aðild að samningnum og gera fríverslunarsamning við ESB.
Ályktanir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins eru birtar á heimasíðu flokksins.
Úr ályktun atvinnuveganefndar:
Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði
til stofnana Evrópusambandsins.
Úr ályktun utanríkismálanefndar
Nú þegar aldarfjórðungur er liðinn frá undirritun EES samningsins er tímabært að gera
úttekt á reynslu Íslands af honum. Áríðandi er að haldið verði áfram að efla
hagsmunagæslu innan ramma EES og tryggja að möguleikar Íslands til áhrifa á fyrri
stigum EES mála verði nýttir til fulls. Sjálfstæðisflokkurinn gerir verulegar
athugasemdir við að tekin sé upp löggjöf í EES-samninginn sem felur í sér valdheimildir
sem fellur utan ramma tveggja stoða kerfis samningsins.
Mat verði lagt á reynsluna af EES | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú er að sjá hvað VG gerir.
Ragnhildur Kolka, 18.3.2018 kl. 17:53
Þingflokkur VG er meðvitaður um þetta mál.
Bjarni Jónsson, 18.3.2018 kl. 22:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.