Þriðjudagur, 13. mars 2018
Pútín-Trump samsærið er falsfrétt
Trump varð ekki forseti Bandaríkjanna vegna þess að Pútín Rússlandsforseti studdi hann. En Pútín-Trump samsæriskenningin gengur út á einmitt það.
Lee Smith rekur Pútín-Trump samsærið til frjálslyndrar elítu sem ekki gat afborið þá tilhugsun að Trump sigraði frambjóðanda elítunnar, Hillary Clinton, á bandarískum forsendum. Pútín hlýtur að bera ábyrgð kjöri Trump, búum til raðfréttir um það og þá trúir almenningur okkur, var viðkvæðið.
En það voru, óvart, ekki rússnesk nettröll sem leiddu bandaríska kjósendur inn í kjörklefann haustið 2016 og sögðu þeim að kjósa Trump. Forsetakjör Trump er niðurstaða bandarískra stjórnmála. Þegar hamfarir knýja dyra hjá trúarsamfélagi er það óðara skýrt með reiði guðs. Frjálslynda elítan á engan guð, aðeins djöfulinn. Og hann heitir Pútín.
Segja engin tengsl milli Moskvu og Trumps | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bíðum og sjáum hvað Robert Mueller segir.
Wilhelm Emilsson, 13.3.2018 kl. 08:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.