Föstudagur, 2. mars 2018
Launastefna lífeyrissjóðanna
Lífeyrissjóðir eiga stóra hluti í flestum stærstu fyrirtækjum landsins og hafa þar með áhrif á launastefnu þeirra. Verkalýðshreyfingin stjórnar lífeyrissjóðum til helminga á móti Samtökum atvinnulífsins.
En lífeyrissjóðirnir beita sér ekki til að stuðla að launajöfnuði. Aðeins örsjaldan heyrast frétt um að lífeyrissjóðir hafi stigið á bremsuna þegar kjör æðstu stjórnenda stærstu fyrirtækjanna eru annars vegar.
Hvers vegna beitir verkalýðshreyfingin ekki þeim verkfærum sem hún hefur til að auka launajöfnuð?
Jöfnuður í samfélaginu er að minnka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.