Föstudagur, 23. febrúar 2018
7,3 % kauphækkun er arðrán í munni sósíalista
Síðustu 12 mánuði hækkaði kaup um 7,3 prósent. Sósíalistar í verkalýðshreyfingunni tala um ,,græðgisvæðingu yfirstéttarinnar".
Yfirstéttin á Íslandi er fremur slöpp í arðráninu fyrst hún leyfir yfir sjö prósent kauphækkun.
Sósíalistaorðræðan í verkalýðshreyfingunni lýsir hugarórum en ekki veruleikanum.
Vilja stöðva græðgisvæðingu yfirstéttarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
11.5.2017:
Starfsmönnum álversins í Straumsvík fækkað um eitt hundrað á nokkrum árum í 380
7.8.2015:
"Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto Alcan sendi starfsmönnum bréf í dag þar sem hún útskýrir afstöðu fyrirtækisins."
"Rannveig segir í bréfinu að ... fyrirtækið hafi tapað samtals sjö milljörðum árin 2012 og 2013 og að hagnaður fyrirtækisins aðeins verið 0,3% arðsemi eigin fjár."
Vilji fyrirtæki hér á Íslandi ekki hækka laun eins og önnur fyrirtæki í landinu verður því einfaldlega lokað og starfsmennirnir fá sér vinnu í öðrum fyrirtækjum sem geta hækkað laun vegna þess að þau eru ekki rekin með tapi.
Starfsmennirnir eru ekki þrælar erlendra stórfyrirtækja eins og Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn vilja greinilega að þeir verði.
Og álverið í Hafnarfirði hefur ekki verið rekið með tapi vegna launa starfsmannanna.
27.4.2017:
"Á aðalfundi Landsvirkjunar í dag var samþykkt tillaga stjórnar fyrirtækisins um 1,5 milljarða króna arðgreiðslu til ríkisins."
10.4.2013:
"Á aðalfundi Landsvirkjunar í dag var samþykkt tillaga stjórnar fyrirtækisins um arðgreiðslu til eigenda, þ.e. ríkissjóðs, að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2012.
Landsvirkjun greiddi 1,8 milljarða í arð í ríkissjóð í fyrra [2012] en fyrirtækið greiddi engan arð í fjögur ár þar á undan [2008-2011]."
Þorsteinn Briem, 23.2.2018 kl. 12:34
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn gapa nú mjög um hagvöxt hér á Íslandi síðastliðin ár en útflutningur á þjónustu hefur skapað þann hagvöxt.
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa ekkert gert til að skapa þennan hagvöxt, heldur þvert á móti gapað af mikilli lítilsvirðingu um ferðaþjónustu hér á Íslandi.
Þorsteinn Briem, 23.2.2018 kl. 12:36
27.9.2015:
"Ef ferðaþjónustan hefði ekki komið til væri hagsveiflan sennilega á enda, þar sem vöruskiptajöfnuður er orðinn neikvæður á nýjan leik.
Ferðaþjónustan hefur gegnt algjöru lykilhlutverki í að byggja upp gjaldeyrisforða Seðlabankans."
Ásgeir Jónsson hagfræðingur útskýrir það sem er að gerast í íslenska hagkerfinu
Auknar fjárveitingar ríkisins til Landspítalans, háskólanna og vegagerðar koma frá ferðaþjónustunni.
27.11.2014:
Hagvöxturinn byggist á vexti ferðaþjónustunnar
Þorsteinn Briem, 23.2.2018 kl. 12:39
Hvernig er það, getur þessi Steini ekki bara opnað sína eigin bloggsíðu fyrst honum liggur svona mikið á hjarta?
Ragnhildur Kolka, 23.2.2018 kl. 13:08
Styð eindregið „Steini Briem“ opni eigin bloggsíðu. Á hins vegar ekki von á að margir kíki á hana.
Einar Sveinn Hálfdánarson, 23.2.2018 kl. 14:01
Copypasta?
Guðmundur Ásgeirsson, 23.2.2018 kl. 14:16
Gefið Briemaranum séns, hann missti af tímanum þegar það var kennt að nota ekki alla fontana sem eru í boði í sama textanum.
Var annars eitthvað innihald í fontasúpunni?
Steinarr Kr. , 23.2.2018 kl. 15:56
Hlýtur líka að hafa misst af tímanum þar sem var kennt að mikil litaskrúð í samfelldum texta er þreytandi fyrir flesta lesendur.
Guðmundur Ásgeirsson, 23.2.2018 kl. 16:20
Einhvers staðar verða vondir að vera, var sagt...!!!
Palli situr uppi með það....:)
Sigurður Kristján Hjaltested, 24.2.2018 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.