Mánudagur, 30. október 2017
Tveir valkostir: stjórn eða óstjórn
Skilaboð kjósenda til stjórnmálamanna voru skýr. ,,Ef þið haldið áfram að bjóða upp á stjórnleysi munum við bæta um betur og senda fleiri framboð á alþingi. Og hananú."
Með átta flokka á alþingi stendur þingheimur frammi fyrir þeirri áskorun að hlusta á skilaboð þjóðarinnar og setja saman ríkisstjórn sem tengir meginpóla.
Á nýkjörnu þingi eru meginpólarnir Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir. Þeir þurfa að ná saman og bjóða þriðja flokknum að vera með. Það yrði einn þessara þriggja flokka: Miðflokkur, Framsóknarflokkur eða Samfylking.
Markmið nýrrar ríkisstjórnar þurfa ekki að vera háleit. Þau eru að halda samfélaginu í skorðum og að sitja út kjörtímabilið.
Tveir valkostir fyrir forsetann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.