Þriðjudagur, 18. júlí 2017
Góðir og vondir útlendingar - landráð og pólitík
Ferðabann Trump á íbúa múslímaríkja þykir sýna útlendingahatur, segja gagnrýnendur hans, sem telja útlendinga eiga að njóta vafans - teljast góðir þangað til annað sannast.
Gott og vel, svarar Trump, látum Rússa líka njóta vafans. Forsetinn segist aðeins hafa stundað pólitík þegar hann átti í samskiptum við rússneska aðila í kosningabaráttunni, að því er kemur fram í New York Times.
Nei, það er skortur á þjóðerniskennd og siðferðislega ámælisvert að eiga samskipti við Rússa, segja gagnrýnendur Trump, t.d. á New Republic.
Alþjóðasinnar í Bandaríkjunum taka Rússa út fyrir sviga: þeir eru vondir útlendingar - líklega þangað til að það sannast að þeir séu góðir.
Það er vandlifað.
Afar, ömmur og barnabörn nú velkomin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.