Laugardagur, 28. janúar 2017
Brexit-Trump byltingin og símtalið við Pútín
Úrsögn Breta úr Evrópusambandinu, Brexit, og valdataka Trump í Bandaríkjunum marka tímamót í alþjóðasamfélaginu. Sumir, t.d. Richard N. Haass, sækja samanburð til Vestfalíufriðarins á 17. öld í því skyni að útskýra stöðu alþjóðamála.
Alþjóðasinnar eins og Haass telja yfirþjóðlegt yfirvald nauðsynlegt til að leysa knýjandi vanda sem í eðli sínu er hnattrænn. En Brexit og Trump standa fyrir sterka þjóðríki og hafna yfirþjóðlegu valdi.
Enn er alltof snemmt að segja hvert útfallið af Brexit-Trump byltingunni verður. Hitt er víst að alþjóðahyggja síðustu áratuga er komin á endastöð. Fjölþjóðabandalög eins og Evrópusambandið tapa slagkrafti sínum og þjóðríkið styrkist.
Bandaríkin og Bretland eru á hinn bóginn ekki í stakk búin að leiða fram nýtt kerfi alþjóðasamskipta. Meira þarf til. Prófsteinn á hve róttæk Brexit-Trump byltingin verður eru samskiptin við Rússland. Í dag tala forsetarnir Trump og Pútín Rússlandsforseti saman í síma. Það símtal gæti gefið vísbendingum það sem koma skal.
Ef Bandaríkin og Rússland friðmælast og taka upp nýja siði er kominn vísir að bandalagi sem gæti breytt alþjóðastjórnmálum varanlega.
![]() |
Frjálst og óháð Bretland mikil gæfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.