Fimmtudagur, 26. janúar 2017
Brexit rífur Ísland frá ESB
Fyrsti þjóðhöfðinginn sem heimsækir nýkjörinn Bandaríkjaforseta er Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. May boðar nýtt bandalag þjóðanna tveggja á alþjóðavettvangi.
Bandaríkin og Bretland eru stórþjóðir sem ramma inn Ísland á Norður-Atlantshafi. Lengra í austri er Evrópusambandið að liðast í sundur.
Ásetningur Bandaríkjanna og Bretlands um nána samvinnu á alþjóðavettvangi gerir pælingar um ESB-aðild Íslands, sem fyrir voru langsóttar, að algjörri fásinnu.
Í nærumhverfi okkar eigum við að rækta samvinnu við Grænland, Færeyjar og Noreg. Næsta skref er að finna okkur stað í umhverfi sem tekur mið af bandalagi Bandaríkjanna og Bretlands. Brussel-leiðangur undir þessum kringumstæðum er óhugsandi.
Óttast að Evrópusambandið liðist í sundur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þjóðverjar sem hafa verið potturinn og pannan í "stærsta þjóðmenningar verkefni 20. aldar" mega aldeilis vera uggandi. Sannleiksráðuneyti og skipulagðar húsleitir hjá borgurum sem skilgreindir hafa verið sem"hægri-öfgamenn" geta svo sannanlega komið í bakið á stjórninni.
Ragnhildur Kolka, 26.1.2017 kl. 11:00
Úrdráttur úr féttinni "fari óvinir Evrópu með sigur í kosningum í Hollandi eða Frakklandi nú" hverjir eru óvinir Evrópu, er þessi Sigmar Gabriel að setja samasem merki milli Evrópu og ESB sé svo er hann á villigötum, Evrópa mun lifa áfram þó Efrópusambandið hverfi.
Hrossabrestur, 26.1.2017 kl. 14:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.