Bandaríkin yfirgefa Evrópu

Síđasti fundur Obama Bandaríkjaforseta og starfsfélaga hans í Rússlandi, Pútín, fór í ađ hvetja til samninga um Úkraínu. Bandaríkin og Evrópusambandiđ styđja ríkisstjórnina í Kiev en Rússar uppreisnarmenn í austurhluta landsins.

Obama er forseti á útleiđ, í janúar tekur Donald Trump viđ. Nýr hćstráđandi í Washington vill hverfa frá stöđutöku Bandaríkjanna í Austur-Evrópu. Baráttan stendur um hvort Úkraína verđi ESB-ríki međ Nató-ađild en Rússar segja ţađ ógna öryggishagsmunum sínum. Minsk-samkomulagiđ í deilunni gerir ráđ fyrir ađ Úkraínu verđi skipt upp í sjálfsstjórnarsvćđi, sem gefur Rússum fćri á ađ stjórna í reynd austurhluta landsins.

Sérfrćđingar í alţjóđamálum, t.d. Robert Kagan, spá einangrunarstefnu Bandaríkjanna í kjölfar sigurs Trump. Í Austur-Evrópu er talađ um ađ Pútín verđi vinsćlli sökum ţess ađ fjarvera Bandaríkjanna geri Rússland sterkt en Evrópusambandiđ veikt. Smáríkin viđ Eystrasalt munu í auknum mćli komast undir rússnesk áhrif.

Evrópusambandiđ tapar áhrifum sínum í Austur-Evrópu. Efnahagslegur máttur ESB kemur fyrir lítiđ ţegar hernađarstyrkur Nató er ekki lengur bakhjarl. Bandaríkin greiđa 70 prósent af kostnađi Nató og Trump mun skera ţau framlög niđur.

Angela Merkel kanslari Ţýskalands mun eiga fullt í fangi međ ađ tryggja ţýska hagsmuni í Miđ-Evrópu. Eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og einangrunarstefnu Bandaríkjanna er kristaltćrt ađ ESB er ekki lengur afliđ sem mótar framtíđ Evrópu. Öxullinn Berlín-Moskva mun gera ţađ.


mbl.is Vill verja lýđrćđisleg gildi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Međ ţví ađ skera niđur í óhóflegum útgjöldum spillingarmála innan ESB, útgjöld sem endurskođendur hafa ekki treyst sér til ađ skrifa uppá í mörg, mörg ár, gćti ESB aukiđ framlag sitt til NATO og aukiđ varnarviđbrögđ sín. En ţađ ţýđir auđvitađ ţađ ađ menn og konur sem hafa haft ađgang ađ fjármunum ESB sér og sínum til framdráttar verđa ađ sitja á honum stóra sínum og vera hógvćr og ţiggja einvörđungu ţau laun sem ţeim er ćtlađ frá launadeild ESB.

Tómas Ibsen Halldórsson, 21.11.2016 kl. 12:05

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband