Miðvikudagur, 12. október 2016
Sjálfstæðisflokkurinn: jöfnuður og stöðugleiki
Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir jöfn tækifæri allra og stöðugleika í efnahagsmálum. Undir forystu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er meiri launajöfnuður á Íslandi en í nokkru öðru landi OECD.
Sjálfstæðisflokkurinn leiðir ríkisfjármálin þetta kjörtímabil og árangurinn er stöðug atvinna, lág verðbólga og sterkur ríkissjóður.
Í þingkosningunum 29. október stendur raunverulegt val á milli forystu Sjálfstæðisflokksins annars vegar og hins vegar Pírata, sem mælast næst stærsti flokkur landsins.
Píratar sækjast eftir umboði kjósenda til að kollsteypa Íslandi. Þeir boða nýja stjórnarskrá, tilraunir í efnahagsmálum og vilja endurvekja ESB-ferli vinstriflokkanna frá síðasta kjörtímabili.
Sjálfstæðisflokkurinn byggir pólitík sína á þjóðarhagsmunum þar sem traustir innviðir skapa öllum möguleika að búa við efnahagslegt öryggi en haga lífi sínu að öðru leyti eins og þeir kjósa.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.