Miðvikudagur, 25. maí 2016
Al Thani-málið fyrra
Hauck & Aufhäuser Privatbankiers keyptu aldrei hlut í Búnaðarbankanum, líkt og Ólafur Ólafsson og félagar hans vildu vera láta. Aðild Hauck & Aufhäuser var sett á svið til að gera Ólaf og félaga trúverðugri kaupendur árið 2003.
Líkt og Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur skilmerkilega rakið er margt líkt með þykjustukaupum Hauck & Aufhäuser árið 2003 og kaup hins arabíska Al Thani í Kaupþingi rétt fyrir hrun. Ólafur Ólafsson og æðstu stjórnendur Kaupþings fengu fangelsisdóma vegna þess máls.
Leikritið í kringum kaupin á Búnaðarbankanum árið 2003 sýnir ósvífni kaupsýslumanna. Engar líkur eru að dregið hafi úr þeirri óskammfeilni.
Fjalla áfram um þýska bankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.