Þriðjudagur, 3. maí 2016
Martröð Samfylkingar rætist
Vinstri grænir áttu að vera litli flokkurinn en Samfylkingin turninn sem keppti við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta var planið um aldamótin þegar Samfylkingin var stofnuð. Í dag mælast Vinstri grænir með 18 prósent fylgi en Samfylkingin átta prósent.
Formenn Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins stunda pólitískt daður á alþingi sem gæti vitað á tilhugalíf þegar nær dregur kosningum. Vinstri grænir gætu orðið þriðja hjólið undir vagni ríkisstjórnarinnar eða myndað tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðisflokknum, ef kjósendum sýnist svo.
Í öllu falli er Samfylkingin úti í kuldanum með ekkert fylgi og álíka óstjórntækir og Píratar. Illugi Jökulsson leggur til Samfylkingin verði lögð niður. Skiljanlega, turninn er orðinn að njóla.
Fylgi Pírata dalar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.