Þriðjudagur, 1. mars 2016
Ríki íslams í Danaveldi
Ríki íslams byggir verk sín á kennisetningum spámannsins Múhameðs og Kóransins. Í Danmörku var afhjúpaður múslímaklerkur sem kennir sömu útfærsluna á trúarboðskap spámannsins og Ríki íslams stundar.
Klerkurinn, Abu Bilal, vill ekki gangast opinberlega við öfgatrú. Danska sjónvarpsstöðin TV2 birti upptöku af boðskap klerksins þar sem hann í þröngum hópi útskýrir að framhjáhald eigi að refsa með grýtingu og að þeir skulu líflátnir sem snúa baki við múslímatrú.
Í orði kveðnu þykist Abu Bilal fylgja reglum dansk samfélags, sem hvorki refsar fyrir framhjáhald né trúarafstöðu, en í reynd boðar hann miðaldahugsun þar sem trúarsetningar eru æðri landslögum.
Tóku átta Hollendinga af lífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þar lá danskur í því! En alls þekkingarlaus í trúarritum Mússa,velti ég fyrir mér hvort refsingin eigi jafnt við um karlinn í framhjáhaldi.
Helga Kristjánsdóttir, 1.3.2016 kl. 14:25
Múslimskur karl "þarf" ekki að halda framhjá - hann má eiga 4 konur.
(Áskil mér rétt til þess að hafa rangt fyrir mér ef svo er ekki...)
Kolbrún Hilmars, 1.3.2016 kl. 15:37
Jú ég hef heyrt þetta Kolbrún mín,en þess hærri væru viðurlögin ef hann héldi samt sem áður framhjá þessum fjórum á einu bretti.
Helga Kristjánsdóttir, 1.3.2016 kl. 18:49
Í kenningu mússa er snýr framhjáhald eða hjúskaparbrot einungis að kvenfólki. Þar er ekki þekkt að karlar haldi framhjá, enda útilokað að þeir geti stundað hjúskaparbrot, samkvæmt trúarkenningunni.
Ef karl sængar með konu utan hjónabands er það ekki framhjáhald, í mesta lagi hægt að tala um að hann sé að prufa nýja vöru í safn sitt, eiginkonusafnið.
Gunnar Heiðarsson, 1.3.2016 kl. 19:52
Jebb en léttir að leika sér á röngunni.
Helga Kristjánsdóttir, 1.3.2016 kl. 21:00
Það eru nú samt ýmsar hliðar á þessu danska máli. Abu Bilal er auðvitað enginn venjulegur klerkur og Grimshoj moskan í Aaarhus er talsvert sér á báti. Fylgir Salafisma, að eg tel.
Í fyrsta lagi er eftirtektarvert hve frjáslyndir danir eru. Þetta líða þeir bara! Að einhver gæji útí bæ styðji opinberlega ISIS og sé með aðrar furðulegar yfirlýsingar. Mundi sennilega aldrei verða liðið hér. Margir íslendingar sem átta sig illa á hve danir eru miklu miklu frjálslyndari en íslendingar.
Í annan stað ber að hafa í huga og undirstrika, að bókstafstrú per se og þeir sem slíkt aðyllast o.s.frv., - að það þarf ekkert endilega að vera samasem merki milli þess og einhvers vafasams. Því mega menn ekki gleyma og því halda danir til haga. Þeir vita alveg sínu viti þeir danirnir.
Að öðru leiri með refsingar við margskonar, á þeirra tíma mælikvarða, brotum eru ósköp álíka í Kóran og Biblíu. Maður hefur oft heyrt kristna söfnuði halda uppi furðulegri bókstafstrú á því sem það telur standa í Biblíunni, m.a. á Íslandi. En það þýðir ekki sjálfkrafa að viðkomandi sé ekki góður og gegn þjóðfélagsþegn.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.3.2016 kl. 22:31
ÓBKK
Þér tekst ávallt að hafa rangt fyrir þér í flestu sem þú skrifar. Það verður að segjast að þú heldur vel uppi þeim merkjum.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.3.2016 kl. 03:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.