Fimmtudagur, 25. febrúar 2016
Vinstri-píratar og hægri-píratar
Svanur Kristjánsson er í bandalagi með Birgittu Jónsdóttur í vinstriarmi Pírata. Sonur Svans er borgarfulltrúi Pírata í Reykjavík og líklega í sama liði. Á hægri væng Pírata stendur Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður sem talar fyrir frjálshyggjulegu lágmarksríki frjálsra borgara án leiðtoga.
Velgengni Pírata í skoðanakönnunum verður skiljanlegra þegar haft er í huga að til þessa störfuðu vinstrimenn og hægrimenn hlið við hlið í flokknum. Saklaust nördayfirbragð Pírata gaf fólki átyllu til að þeim atkvæði sitt í skoðanakönnunum. Umræða síðustu daga gefur til kynna að þeir dagar séu taldir.
Uppgjör vinstri-pírata við hægri-pírata er hugmyndafræðilegt annars vegar og hins vegar persónulegt, líkt og ávallt í innanflokksdeilum. Það er einnig uppgjör á milli hugsjónafólks og raunsæismanna.
Baráttan stendur um fylgi sem við síðustu mælingu var 35 prósent. Innanflokksátök draga úr fylgi en fylgistap er einmitt eldsneyti slíkra átaka. Þegar barist er um síminnkandi gæði verður hver ný orusta mikilvægari en sú síðasta.
Ráðist á þingmann með svikabrigslum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.