Föstudagur, 4. september 2015
Pútín, fræðimenn og RÚV-klámið
Pútín í Rússlandi talar í sama tón og fræðimenn á vesturlöndum. Flóttamannavandinn í Evrópu er afleiðing mistaka vestrænna ríkja í málefnum mið-austurlanda. New York Times ræðir við sérfræðinga sem efnislega segja það sama og haft er eftir Pútín í Morgunblaðinu:
Hvað er það með þessa stefnu [vesturlanda]? Þetta er innleiðing á þeirra eigin mælikvörðum þar sem ekki er tekið tillit til sögu, trúarbragða, bæði þjóðar- og menningareinkenna á þessum svæðum.
Í New York Times er fjallað um hve hópar sýrlensku flóttamanna eru ólíkir. Sumir eru sterkefnaðir, aðrir í millistétt og enn aðrir fátækir. Sameiginlegt eiga þeir að hafa gefist upp á heimalandi sínu.
Trúbræður og nágrannar Sýrlendinga gera mest lítið fyrir þá eins og kemur fram í frétt á Vísi.
Alvöru fjölmiðlar skýra og upplýsa um flóttamannavandann. RÚV á hinn bóginn stundar tilfinningaklám sem gengur út á að varpa rýrð á íslensk stjórnvöld. Fyrstu fjórar fréttir í hádegisfréttum RÚV gengu allar út á að Ísland taki ekki við nógu mörgum flóttamönnum. Fréttamaður RÚV rak hljóðnemann upp í trýnið á ráðherra og spurði hvenær tala lægi fyrir um fjölda flóttamanna. Ráðherra var gerður tortyggilegur með því að hafa ekki tölu á hraðbergi.
RÚV er löngu orðið að sértrúarmiðli aðgerðasinna sem sérhæfir sig í áróðri en ekki faglegri umfjöllun um málefni líðandi stundar.
Pútín sá vandann fyrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Því miður er þetta satt hjá þér, Páll.
Jón Valur Jensson, 4.9.2015 kl. 15:53
Þetta er málið við erum ekki að tala um venjulegt flóttafólk. Fólk sem myndir eru teknar af er vel til fara og jafnvel bátafólkið ef það kemmst lífs af er allt óhrakið. Ég sé ekki annað en að ferðir þessa fólks séu plönuð af ferðaskrifstofum. Ein mynd stakk í stúf en það er konan sem lá á jarnbrautar teinum í Bútapest en skórnir og allt virtist vera eins og hér væri kona með nægan pening. Það er hægt að sjá þetta í The Guardian.
Valdimar Samúelsson, 4.9.2015 kl. 18:39
Það er ekki öllum gefið að greina vandamál.
Sigurður Þórðarson, 5.9.2015 kl. 13:05
Ekki honum Degi B. að minnsta kosti !
Jón Valur Jensson, 5.9.2015 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.