Mánudagur, 27. apríl 2015
Jón Ásgeir: Davíð ofsækir mig ekki (lengur)
Jón Ásgeir Jóhannesson, kenndur við Baug, hélt því lengi fram að valdamesti maður landsins, Davíð Oddsson, sæti um sig og sigaði lögreglunni á Baug. Í áravís var það viðkvæði Jóns Ásgeirs að Davíð Oddsson væri fjandmaður sinn.
Nú ber svo við að Jón Ásgeir skrifar grein í blað sitt og kennir Davíð ekki um ófarir sínar heldur Hæstarétti Íslands.
Útspil fjölmiðlaauðmannsins hlýtur að teljast þroskamerki.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.