Já Ísland: ekki þarf samning til að taka afstöðu

ESB-sinnar skipuleggja sig í félagsskap sem heitir nafni til höfuðs tilgangi samtakanna, Já Ísland. ESB-sinnar halda löngum fram þeim málatilbúnaði að ekki sé hægt að taka afstöðu til þess hvort Ísland eigi heima í Evrópusambandinu nema fyrir liggi aðildarsamningur.

Í umsögn Já Íslands um tillögu vinstrimanna á alþingi um að endurlífga dauðu umsóknina frá 16. júlí 2009 er gríman felld og ESB-sinnar viðurkenna afstöðu sína

Já Ísland vill aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Þá liggur það það fyrir. Það þarf ekki að kíkja í pakkann, ekki heldur að sjá hvaða samningur fæst ti að taka afstöðu með eða móti aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Um leið og ESB-sinnar viðurkenna þessa nýju afstöðu kippa þeir fótunum undan fyrri afstöðu, sem var að án samnings væri ekki hægt að taka upplýsta afstöðu til ESB-aðildar.

Nema, auðvitað, að ESB-sinnar séu að játa á sig óupplýsta afstöðu. Og líklega er það tilfellið.

 

 


mbl.is „Málinu lokið af hálfu ESB“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Maður sér þetta víða meðal kjána. Þeir neita til dæmis að taka afstöðu til dauðans fyrr en hann liggur fyrir (sjá; ríkisstjórnartíð Jóhönnu, Össurar, Steingríms). Kasta sér því út um glugga á 10. hæð trúandi því að þeir geti flogið. Neita að taka afstöðu til frelsis fyrr en það er horfið. Neita að taka afstöðu til sjálfstæðis fyrr en setið er í fangelsi og grátið er söltum tárum yfir brottkasti þess. Réttu orðin yfir svona fyrirbæri eru; afglöp, afglapar, afglapaveldi og þvaður.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 27.4.2015 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband