Þriðjudagur, 17. febrúar 2015
Grísk-þýskur ómöguleiki
Grikkir vilja taka einhliða ákvörðun um sín fjármál, í nafni fullveldis og lýðræðis, en eru í myntsamstarfi við 18 önnur ríki og hafa þegið þaðan ótalda milljarða evra í björgunaraðstoð.
Þjóðverjar tóku í upphafi þátt í evru-samstarfinu á þeim forsendum að það yrði eingöngu myntsamtarf en ekki samstarf á sviði ríkisfjármála - enda vissu þeir að slíkt samstarf þýddi að þýski ríkissjóðurinn, sá öflugasti á evru-svæðinu, stæði í ábyrgð fyrir skuldum óreiðuríkja eins og Grikklands.
Ef Grikkir gefa eftir í yfirstandandi deilu viðurkenna þeir að fullveldi og lýðræði er orðin tóm í Evrópusambandinu. Ef Þjóðverjar gefa eftir viðurkenna þeir ábyrgð á skuldum Suður-Evrópuríkja.
Mögulega finnst tímabundin málamiðlun á grísk-þýska ómöguleikanum en það verður aðeins til að viðhalda blekkingunni í evru-samstarfinu enn um hríð.
Telur samkomulag enn mögulegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
IMF Prógrammið sem grikkir eru í, - er nákvæmlega eins og IMF prógrammið sem Ísland var í.
Það tekur enginn ,,einhliða ákvörðun" um fjármál rikis. Hverskonar barnaskapur er þetta. Við erum ekki í fornöld þar sem einangrun svæða gat verið fífurleg.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.2.2015 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.