Sunnudagur, 19. október 2014
Sigurbjörg á tveim kennitölum í nefndarvinnu
Rannsóknanefnd alþingis um Íbúðarlánasjóð kostaði skildinginn. Karl Garðarsson þigmaður spurði ráðherra um einstaka kostnaðarliði. Í töflu sem fylgdi kostnaðaryfirliti vegna verktaka eru fjórir liðir, sbr. hér að neðan.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur er skráð fyrir 1,7 m.kr. greiðslu sem verktaki. Annar verktaki, Góðir stjórnsýsluhættir, er skráður fyrir 3,8 m. kr. greiðslu. En seinni verktakinn, Góðir stjórnsýsluhættir, er einkahlutafélag Sigurbjargar samkvæmt ríkisskattstjóra.
Það teljast varla góðir stjórnsýsluhættir að fela greiðslur til eins og sama aðila með því að skrá þær á tvær kennitölur.
Verktaki | Upphæð | Viðfangsefni |
Góðir stjórnsýsluhættir ehf. | 3.793.500 | Ráðgjöf og textavinna |
Kvant ehf. | 6.390.390 | Textavinna og rannsóknir |
PricewaterhouseCoopers ehf. | 5.218.595 | Rannsóknarvinna |
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir | 1.773.000 | Ráðgjöf og rannsóknarvinna |
Athugasemdir
Þú ert ansi naskur að góma upplýsingarnar Páll. Þessi siðprúði siðfræðingur skilur eftir sig margvísleg spor missiðleg.
Ragnhildur Kolka, 19.10.2014 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.