Þriðjudagur, 29. október 2013
ESB-sinnar leita að pilsfaldi stórveldis
ESB-sinnar sýna okkur inn í hugarheim sinn þegar þeir telja viðskipti við Kína sambærileg við inngöngu í Evrópusambandið. Björn Valur Gíslason leggur þetta að jöfnu og aðrir talsmenn ESB-aðildar eru sama sinnis. Þessi afstaða sýnir aðeins lítilþægni ESB-sinna; þeir telja Ísland ekki þess umkomið að standa á eigin fótum og verði að leita skjóls hjá stórveldi.
Viðskipti við Kína, á grundvelli tollasamnings, felur ekki í sér framsal á fullveldi Íslands líkt og aðild að Evrópusambandinu fæli í sér. Hér er um algerlega ósambærilega hluti að ræða.
Íslendingar ræddu linnulaust allt síðasta kjörtímabil hvort þjóðin ætti að ganga í Evrópusambandið. Niðurstaðan kom í þingkosningunum í vor. Einn flokkur, Samfylkingin, bauð fram undir merkjum ESB-aðildar og fékk 12,9 prósent atkvæðanna. Utanríkisráðherra túlkar sjónarmið afgerandi meirihluta landsmanna þegar hann segir Ísland ekki á leiðinni inn í Evrópusambandið.
Eðlilegt að nýta áhuga Kínverja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fínt að " ganga " í Kína eins og Tíbet gerði um árið.
Jón Ingi Cæsarsson, 29.10.2013 kl. 12:48
Hef oft verið Sammála þér Páll en ekki í þessu.
Vill engar kínverskar nýlendur hingað. Ég kaupi það ekki í eina sekóndu að þessi Nubo vilji þetta land í þeim tilgangi sem að hann segir.
Sveinn Dagur Rafnsson (IP-tala skráð) 29.10.2013 kl. 15:24
Ég vil heldur ekki Nubo, Sveinn Dagur, og er sammála greiningu þinni. Á hinn bóginn: við getum átt viðskipti við Kínverja.
Páll Vilhjálmsson, 29.10.2013 kl. 15:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.