Mánudagur, 26. ágúst 2013
Meirihlutinn á alþingi og þingræðið
Meirihluti alþingis ákvað 16. júlí 2009 að Ísland skyldi sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þessi meirihluti féll með látum í kosningunum í apríl í vor.
Stefna þeirra tveggja flokka sem fengu mest fylgi í kosningunum í vor er að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan.
Nýr meirihluti á alþingi endurspeglar þá stefnu og stöðvar aðildarferlið inn í Evrópusambandið. Þannig vinnur þingræðið.
Engin viðræðuslit án aðkomu Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Á alþingi var þvinguð fram ólýðræðisleg kosninganiðurstaða með hótunum, 16 júlí 2009. Fyrirvarar hafa verið hundsaðir, eins og ekkert sé sjálfsagðara, þegar reglurugls-miðstýringar-einræðis-bankabandalagið ESB er annars vegar.
Lýðræði og mannréttindi eru einungis innantóm orð á pappírum ESB-bankaræningja-flottræflanna, og þeirra ofurlaunuðu þjóna vítt og breitt í Evrópu.
ESB hertekur fjölmiðla og ríkisstjórnir þjóða með hótunum og kúgunum. Minnimáttar hópar fara verst út úr þessari ESB-hertöku-maskínu, sem kemur öllum ábyrgðum á þá varnarlausu og heiðarlegu.
Fleiri þvingaðar kúgunar-niðurstöður á alþingi Íslands eru greinilega á dagskrá hjá verðandi stórveldinu ESB. Og liðhlaupar óábyrga ESB-stórveldisins sjá um eineltið á heiðarlega fólkinu.
ESB-studdir og ábyrgðarfríaðir liðhlaupar auðvaldsins streyma fram á ritvöll ESB-fréttablaðsins og fleiri miðla.
Hverja ætlar almenningur að styðja í þessu stríði?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.8.2013 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.