Mánudagur, 15. apríl 2013
Árni Páll vill lítinn flokk í þágu ESB-sértrúar
Formaður Samfylkingarinnar er sannfærður ESB-sinni og vill Ísland í Evrópusambandið hvað sem tautar og raular. Árni Páll Árnason segist fremur vilja lítið fylgi en að láta af sértrúarstefnunni.
Samfylkingin var stofnuð til að verða stór flokkur, átti að keppa við Sjálfstæðisflokkinn um forystu í landsmálum.
Ekki lengur. Núna er kappsmál að halda fylginu í lágmarki en verja sértrúarvæðinguna með kjafti og klóm. Árni Páll festir sig í sessi sem íslenska útgáfan af norður-kóreönskum leiðtoga.
Athugasemdir
Árni Páll er ekki fróðari en flestir Íslendingar,um hvað þjóðinni er fyrir bestu,nema kannski þessari sérstöku hennar Ingibjargar.Hann og samherjar fóru einhvernveginn sem refsivendir inn í ríkisstjórn,tillitslausir,hrokafullir,blindir.Fóru alltaf djúpleiðina að markmiðum sínum,eins og umsókn í Esb. vitandi hug flestra Íslendinga,sem var þá ástæðan fyrir að þeir felldu frumvarp Sjálfstæðisflokks um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er bara kapp í okkur líka,að losna við þessa Esb umsókn sem allra fyrst.
Helga Kristjánsdóttir, 15.4.2013 kl. 21:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.