Ósögð tilgáta Stöðvar 2 um grimma dómara

Stöð 2 er í eigu auðmannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem berst fyrir áframhaldandi ítökum á íslensku samfélagi í réttarsölum og í fjölmiðlum. Frétt Stöðvar 2 sagði frá dómara sem sakfelldi nýlega viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs.

Fréttin sagði að í 99,4% tilvika sakfelldi viðkomandi dómari. Til samanburðar tók fréttamaðurinn dómara sem var með lægst sakfellingarhlutfallið, sem er 93%.

Í sakamálum er ekki ákært nema yfirgnæfandi líkur séu á sakfellingu. Þegar sex prósentustig skilja á milli þess dómara með hæsta sakfellingarhlutfallið og dómarans með lægsta hlutfallið er ekkert að marka samanburðinn nema fyrir liggi ítarleg greining á dómsmálunum.

Greining á dómsniðurstöðum einstakra dómara byggir ávallt á tilgátu. Ósögð tilgáta Stöðvar 2 er að Jón Ásgeir og auðmannagengið séu saklausir piltar sem ,,lentu í hruni" en bera enga ábyrgð og ættu að ganga lausir til að endurtaka leikinn. Dómarar sem ekki fallast á tilgátu Stöðvar 2 fá uppnefnið ,,hinn grimmi."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er leitt að sjá hvernig fjölmiðlum Jóns Ásgeirs er endalaust beit til að rægja rettarkerfið. Að búa til skrimslasögur um alla sem vinna við að koma lögum yfir þessa bankaniðinga er orðið sérgrein þeirra þarna a 365.

Ragnhildur Kolka, 30.12.2012 kl. 17:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Til engrar furðu spinnur Ólafur Arnarson, "hagfræðingur" út frá þessari falskenningu á Pressunni í dag. Hann hefur reyndar verið einn harðasti varðhundur banka- og útrásarmógúlanna undanfarin ár.

Axel Jóhann Axelsson, 30.12.2012 kl. 19:35

3 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Frettir af dóm yfir einum af þessum  Víkingum- eða tveim- var lesin aftur og aftur á st.2 - með tárum yfir því að saklausir drengir sem gerðu ekkert af ser--- væru settir í svona klemmu !!!   þeir hafi ekki grætt neitt á því að spreða sparifé landsmanna í bootnlausa hít gróðamanna.   Það kemur ekki í veg fyrir að almenningur er ekki sjónlaus og veruleikafyrtur eins og þessir guttar !!

Erla Magna Alexandersdóttir, 30.12.2012 kl. 20:19

4 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Ja- og svo ætlar Ríkið að borga hlut af málskostnaði- fyrir þessa saklausu drengi !

Erla Magna Alexandersdóttir, 30.12.2012 kl. 20:20

5 identicon

Er líklegt að maður sem haldinn er slíku dómgreindarleysi, að hækka laun forstrjóra Landsspítalans um litlar l 600 þúsund á mánuði - 7,2 milljónir á ársgrundveli), meðan " þrælr hans hafa mátt  margir hverjir lepja innan við 300 þúsund á mánuði ?

 Verði Guðbjartur skáti & Skagamaður, formaður Samhryggingrinnar, bíða þjóðrinnar margar delluákvarðanir verði maðurinn ráðherra .

 Má ég þá heldur biðja um sólarolíubrúnan Árna Pál !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 30.12.2012 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband