Laugardagur, 13. október 2012
2007-hagfræðingur vill álver
Ingólfur Bender, bankahagfræðingur frá tímum útrásar, vill álver til að hressa upp á braskmöguleika fjármálastofnana. Rökin eru þau að það sé slaki í hagkerfinu.
Með 4,9 prósent atvinnuleysi er enginn slaki í hagkerfinu. Ingólfur fer með þvætting enda er honum borgð fyrir það.
Við þurfum alls ekki álver. Miklu frekar þurfum við hærri vexti til að slá á þenslu í atvinnulífinu. Látum ekki milljón króna mennina ljúga okkur inn í nýja útrás.
Rétti tíminn fyrir álver í Helguvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvaða þenslu í atvinnulífinu ert þú eiginlega að tala um ?
Ég tel mig nú þokkalega tengdan atvinnulífinu og sé bara hvergi einhverja þenslu í gangi.
Eitthvað tal um að nú þurfi að hækka vexti í landinu er náttúrulega hreinræktað glapræði þegar unnið er að því hörðum höndum að koma atvinnulífinu í gang.
Nei nú skaustu vel yfir markið Páll.
Þorsteinn V Sigurðsson, 13.10.2012 kl. 13:33
Ég held að Páli hafi misritast herfilega með athugasemd sinni um að hækka þyrfti vexti núna í því slaka ástandi sem hér er ríkjandi ennþá í atvinnulífinu. Hann hlýtur að hafa ætlað að skrifa að hér þyrfti að hækka atvinnustigið. Varðandi þörf á vaxtahækkun núna talar hann eins og öfugmælaraddirnar í Seðlabankanum sem hafa hamrað á þeirri blekkingarþulu undanfarin misseri að hækka þyrfti vexti til að koma í veg fyrir ofþenslu núna í slakanum í atvinnulífinu er vinnufúsar hendur yfirgefa landið í stríðum straumum vegna atvinnuleysis og lífskjaraskerðingar. Verðbólgumarkmið Seðlabankans fela bókstaflega í sér markmið um verðbólgu og tilheyrandi kostnaðarhækkun fyrir skuldug fyrirtæki og heimili. Það er þó ekki þorri almennings sem hagnast á verðbólgunni heldur fjármagnseigendur, lánveitendur og lánastofnanir.
Kristinn Snævar Jónsson, 13.10.2012 kl. 13:49
Hitt er annað að ofuráhersla á orkusölu til málmbræðslna fjölþjóðafyrirtækja á fáránlegu allt of lágu verði, sem þar að auki skilja tiltölulega lítið eftir af arðmynduninni í íslensku efnahagslífi, er augljóslega röng stefna. Maður spyr sig hvernig menn hafa getað samið svona herfilega af sér fyrir Íslands hönd, ítrekað, á undanförnum áratugum frá því að fyrsta álbræðslan var reist hér; Og, áhættan vegna breytilegs orkusöluverðs fyrst og fremst á Íslandi sem orkusala. Þetta virðist sami hugsunarháttur eins og hér hefur verið ríkjandi varðandi verðtryggð lán, þar sem öll áhættan af verðtryggðum lánum hérlendis er alfarið á lántakendum. Greiðandinn er sá sami: Almenningur á Íslandi.
Kristinn Snævar Jónsson, 13.10.2012 kl. 13:59
Hér var ýmislegt skrýtið.
5% atvinnuleysi er 4% of mikið. Og svo voru það allir brottfluttu. Eiga þeir séns á að koma til baka. Eða þá að almenningur niðurgreiði raforku. Tja. Þvílíkur þvættingur. Er ekki Landsvirkjun eina alvöru "sameign" landsmanna í dag?
Heldur er nú orðið erfitt að vera til ef maður má ekki hafa unnið árið 2007. Bara senda alla eldri en 6 ára í skóla til Noregs?
jonasgeir (IP-tala skráð) 13.10.2012 kl. 15:27
Hávextir til langs tíma valda þenslu, rýrnun myntar, verðbólgu og tilfærslu kapítals til þeirra sem mest hafa aðgang að því. Þetta er algert skammtímaverkfæri í þenslu-heftingu, svona eins og að pissa í skóinn sinn.
Hækkun vaxta hefur og þau áhrif í okkar verðtryggða umhverfi, að reyta peninga af öllum þeim sem yfirhöfuð hafa skuldir, nú eða sökkva þeim dýpra í súpuna.
Hvað varstu að hugsa Páll??!?!?!!!????
Jón Logi (IP-tala skráð) 13.10.2012 kl. 17:40
@KSJ:
Menn sömdu ekki af sér varðandi orkuverð til stóriðju, kynntu þér aðeins málin:
-Vöruskiptajöfnuður áliðnarins árið 2010 var hagstæður upp á 120 milljarða
- Sala raforku til áliðnaðar hefur verið með arðsömustu starfsemi raforkufyrirtækja hér á landi um árabil sbr. nýlegar upplýsingar OR og Landsvirkjunar
- Landsvirkjun hefur gefið það út að félagið geti greitt upp allar skuldir sínar á 10-12 árum
Hvað er svona hræðilegt við þetta?
Páll veit því miður ekkert um efnahagsmál þó hann sé ansi glöggur í pólitískum greiningum sínum.
Við þurfum að skapa verðmæti svo hægt sé að skapa störf, álver er góð hugmynd og hrinda þarf framkvæmdum af stað sem fyrst.
Helgi (IP-tala skráð) 14.10.2012 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.