Fimmtudagur, 4. október 2012
Fréttablaðsflokkurinn
Við-getum-ekki-fólkið sem telur ESB-bjargræðiið einu von Íslands fær hvatningu til að stofan stjórnmálaflokka í leiðara Fréttablaðsins. Ritstjórinn telur við-getum-ekki-fólkið hinu einu sönnu frjálslyndu miðju í íslenskum stjórnmálum.
Samfylkingin sem til skamms tíma þóttist vera frjálslyndur og á miðjunni og er ábyggilega hinn eini sanni ESB-flokkur virðist ekki lengur trekkja enda mælist hann aðeins með 20 prósent í skoðaanakönnunum. Samfylkingardeild Sjálfstæðisflokksins fúlsar við móðurflokknum og ekki virðast aflóga framsóknarmenn með ESB-sannfæringu hrifnæmir. Kannski að formennska Árna Páls myndi breyta einhverju.
Leitin að hinni frjálslyndu miðju heldur áfram er er gott til þess að vita að Evrópsambandið býður upp á margvíslega styrki til hópa og félagasamtaka sem sýna sambandinu velvild. Fréttablaðsflokkurinn uppi á Íslandi er nefnilega einn um það að telja Evrópusambandið lausn á efnahagsvandanum. Í mörgum borgum Evrópu eru mótmælagögnur gegn efnahagspólitík Evrópusambandsins og mælingar sýna sambandið í lágu rykti hjá almenningi í álfunni.
Ef vel er að gáð hlýtur að finnast IPA-styrkur hjá Evrópusambandinu með yfirskriftinni: the Icelandic specimen which belives in the future of the European Union.
Segir ESB kaupa sér velvild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Fréttablaðsflokkurinn uppi á Íslandi er nefnilega einn um það að telja Evrópusambandið lausn á efnahagsvandanum"
Það væri óskandi að einhver flokkur væri með peninga eða efnahagsttefnu. Samfylkingin er allavega með eitthvað.
annað en hinir flokkarnir geta sagt.
Sleggjan og Hvellurinn, 4.10.2012 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.