Miðvikudagur, 25. júlí 2012
Skatturinn, ríkisstjórnin og andstaðan
Hrunið lék Ísland ekki nærri eins grátt og evru-kreppan leikur Suður-Evrópu. Þökk sé neyðarlögunum, krónunni og fullveldinu tókst að lágmarka skaðann. Bættur efnahagur þjóðarinnar endurspeglast í niðurstöðum skattframtala.
Ríkisstjórnin mun eðlilega gera sér mat úr betri tíð. Stjórnarandstaðan á í meginatriðum um tvo kosti að velja andspænis sterkari málefnastöðu ríkisstjórnarinnar. Í fyrsta lagi að véfengja tölurnar og leggja áherslu á að efnahagsbatinn sé veikur og ekki sjálfbær. Innifalið í þessari nálgun er gagnrýni á ríkisreksturinn og setja fram kröfu um meiri niðurskurð, samanber útspil Bjarna Benediktssonar í síðustu viku.
Í öðru lagi getur stjórnarandstaðan viðurkennt efnahagsbatann en gagnrýnt að hann sé ekki meiri. Hér væri áherslan á hversu hægt gengi að endurskipuleggja atvinnulífið almennt og fjármálastofnanir sérstaklega.
Fljótt á litið sýnist seinni leiðin líklegri til árangurs. Bæði er að trauðlega er hægt að andæfa á trúverðugan hátt betri afkomu þjóðarinnar og svo er hitt að neikvæðni og efnahagslegt niðurrif fer hægriflokkum ekkert sérstaklega vel.
Bestu sóknarfærin á ríkisstjórnina eru samt sem áður ekki á sviði efnahagsmála eða atvinnulífsins heldur byggja þau á þeirri staðreynd að ríkisstjórn Jóhönnu Sig. stefnir Íslandi áfram inn á glötunarbraut ESB-aðildar.
Ríkisstjórnin veit um þennan annmarka á málefnastöðu sinni og er vís með að koma ESB-umsókninni í skjól með biðleik, t.d. að fresta aðildarviðræðum.
Umskipti í afkomu heimilanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú er endanlega komið í ljós, að sú heimska og fáfræði Norrænu (velferðarstjórnarinnar)að hafna því að taka verðtrygginguna, úr sambandi strax eftir Hrun, er nú búin að valda heimilunum í landinu,meiri hörmungum og skaða, en fordæmi eru fyrir í Íslandsögunni.
Þetta eru einhver mestu efnahagsmistök sem gerð hafa verið í Íslandsögunni, og þessir flokkar munu verða fyrir gífurlegu fylgishruni í næstu kostninum.
Og 110% prósent leiðin varð til þess að þeir efnameiri sem höfðu háar tekjur, og tóku há lán,fengu mikið afskrifað en Jón og Gunna fengu lítið sem ekkert afskrifað.
Halldór Björn (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 14:21
Frekar þynnildislegur pistill hjá þér Páll um efnahagsmál. Tek heils hugar undir ummæli Halldórs Björns og góð ummæli Einars Steingrímssonar, stærðfræðings, á facebook:
Núverandi ríkisstjórn hefur verið það í lófa lagið, vildi hún verja hagsmuni þeirra sem minnst mega sín, að afnema verðtrygginguna. Það hefur hún ekki gert, svo höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána hefur hækkað um ca. 40% frá hruni. Hvert skyldi sú eignatilfærsla fara?
Vinstristjórn hefði heldur ekki horft aðgerðalaus á að bankarnir innheimtu af fullri hörku þessi lán, sem þeir fengu með gríðarlegum afslætti, samtímis því sem daglega berast fréttir af milljarða afskriftum auðmanna sem samt halda fyrirtækjum sínum í skjóli bankanna og þeirra valdaklíkna sem enn fara með öll völd í samfélaginu.
Það hefði e.t.v. ekki átt að koma á óvart, en það er löngu orðið ljóst að "vinstriflokkarnir" höfðu aldrei neinn áhuga á að hrófla við því gegnrotna valdakerfi sem við búum við. Bara að komast til valda innan þess, í sátt við það auðvald sem enn drottnar yfir landinu og glottir að þeim sem minna mega sín .
Það sama munu "Sjálfstæðis"Flokkurinn og gamla, jú kannski á Framsóknar, eða ekki maddaman gera. Haltu mér slepptu mér segir maddaman sem fyrr.
Get a grip Palli minn.
Pétur Örn Björnson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 16:00
"Bara að komast til valda innan þess, í sátt við það auðvald sem enn drottnar yfir landinu og glottir að þeim sem minna mega sín"
Glottir þú Páll Vilhjálmsson ... og ef svo er, fyrir hverja? Vinsamlegast svaraðu.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 16:04
Styrmir Gunnarsson hefur sagt að hér sé allt sjúkt og ógeðslegt (sagt 2009) hann hafi 50 ára reynslu af að horfa upp á ógeðið og viðurstyggðina og nú væntanlega 53 ára reynslu af því?
Ég ber virðingu fyrir heiðarleika Styrmis, en hvað meinar maðurinn nákvæmlega? Af hverju skrifar hann ekki nánari útlistingar á þeim orðum sínum á Evrópuvaktinni, eða þjónar það ekki hagsmunum hans?
Er oft erfitt, alveg voða, voða, voðalega erfitt að dansa línu-dansinn?
Af hverju ekki bara að segja nakinn sannleikann, allan sannleikann. Komdu nú Páll þeirri vinsamlegu ábendingu frá mér til Styrmis. Þið eruð í kallfæri.
Eða í stíl Styrmis ... Hvað meinar maðurinn?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 16:22
Ógeðslegt þjóðfélag
„Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“
Styrmir Gunnarsson, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis.
Ekki sjúkt segir Styrmir, heldur ógeðslegt,
engin prinsip, engar hugsjónir, ekki neitt, bara tækifærismennska, valdabarátta.
Aha, valdabarátta segir Styrmir ... en fyrir hverja? Hver fóðrar hönd hans?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 16:39
Er ekki kominn tími til að "roðfletta myrkrið" og opinbera allan sannleikann?
Þeir sem biðja um gegnsæi, ættu kannski fyrst að líta í eigin barm
og alveg endilega ... plís ... opin-bera sig? Kannski þeir tali þá tungum?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 16:48
Ég skal opin-bera mig eins og Díogenes í tunnunni, ég er ber-strípaður.
En ég spyr, er enginn heiðarlegur maður til í þessu ógeðslega þjóðfélagi?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 16:52
Af hverju þegja allir? Eru allir hugsi, eða vita upp á sig skömmina?
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 25.7.2012 kl. 18:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.