Föstudagur, 13. júlí 2012
Monti tók Merkel í bólinu
Merkel kanslari Þýskalands var sofandi eftir síðasta neyðarfund leiðtoga evru-ríkjanna þegar Mario Monti forsætisráðherra Ítala útskýrði niðurstöðu næturfundarins fyrir fjölmiðlum. Merkel kom út sem tapari en Monti sigurvegari. Á þessa leið greinir Frankfurter Allgemeine eftirmála neyðarfundarins.
Túlkun Monti á fundinum var að Merkel hefði gefist upp fyrir kröfu Ítala og Spánverja um beina aðstoð Seðlabanka Evrópu við gjaldþrota banka annars vegar og hins vegar vægari kröfum um niðurskurð í opinberum rekstri þeirra ríkja sem þiggja neyðarlán frá Evrópusambandinu.
Monti nefndi ekki alla fyrirvarana sem Þjóðverjar settu í texta samkomulagsins, s.s. um að áður en bönkum yrði lánað beint yrði að smíða sam-evrópskt bankaeftirlit (og það tekur í það minnsta tvö ár).
Túlkun Monti á samkomulaginu entist í tíu daga eða svo á fjármálamörkuðum. Í reynd leysti neyðarfundurinn ekki neitt. Enn er óljóst hvað verður um evruna.
Samkvæmt nýrri skýrslu frá Merril Lynch eru auknar líkur á að evru-samstarfið gliðni.
Ávöxtunarkrafan á uppleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Alltaf,allstaðar sam-eitthvað!! sam-evrópskt, Sam-fylking,konur allstaðar í sam-fararbroddi.
Helga Kristjánsdóttir, 13.7.2012 kl. 12:32
Og draumur Össurar samkvæmt viðtali i Pressunni er að komast inn í ESB. Hversu veruleikafyrrtur getur einn maður orðið. h
Draumurinn?
Að Ísland verði aðili að
Evrópusambandinuttp://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/ossur-skarphedinsson-yfirheyrdur-myndir
Og
áfram er böðlast í að láta drauminn rætast, án þess að huga að því að þjóðin er ekki sammála honum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2012 kl. 13:21
Flott fyrirsögn !
Jón Valur Jensson, 13.7.2012 kl. 18:04
Annars er þetta alveg tilefni til að rifja upp "gamla" vísu:
Við tökum ekki mark á monti,
maðurinn er alveg frá sér.
Eins þótt sé úr fremsta fronti,
sem fyrst hann þarf af rugli' að ná sér.
Þá er kannski' á vizku von,
vilji'hann fleygja Lissabon-
sáttmálanum sorphaug á–––
sannlega' á þar heima, já!
Jón Valur Jensson, 13.7.2012 kl. 18:08
Er það ekki góður staður?
þór (IP-tala skráð) 14.7.2012 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.