Mánudagur, 5. desember 2011
Össur jafn skarp á utanríkismál og efnahagsmál
Í hrunskýrslu alþingis viðurkennir Össur Skarphéðinsson að hann hafi ekki hundsvit á efnahagsmálum. Eftir útspil Össurar skarpa í hádegisfréttum RÚV er óhætt að bæta utanríkismálum við hundavitneskju ráðherrans. Og er gamanið að kárna þar sem Össur er skráður ábyrgðarmaður á utanríkismálum þjóðarinnar.
Össur telur að kanadíski herinn setji landakaupaáform fyrrum starfsmanns kínverska kommúnistaflokksins á Íslandi í samhengi við útþenslustefnu Kína vegna þess að einhverja foringja í kanadíska hernum langar í fleiri ísbrjóta.
Líklega yfirfærir Össur samfylkingarpólitík yfir á Kanada og fær út að fyrirlitning á almannahagsmunum sé jafn mikil þar og í stjórnarráði Samfylkingarinnar.
Telja herinn horfa til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég held þú ættir að setja sjálfan þig í þann hóp manna, sem ekki hafa hundsvit á utanríkispólitík. Huang Nubo er "starfsmaður áróðursdeildar kínverska kommúnistaflokksins", sem er það sama og að segja að hann sé njósnari. Sagt á fínu máli.
Og ef maður á Íslandi, haldi að Kínverji hafi ætlað að koma til Íslands og reisa golfvöll uppi á öræfum og hefja þar ferðamannaþjónustu, þá á maður bágt og það reglulega mikið af því.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 5.12.2011 kl. 16:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.