Fangelsispeningar kaupa Björgvini G. pólitískt framhaldslíf

Fjárlaganefnd alþingis ætlar bæði að setja peninga í nýtt fangelsi á Hólmsheiði og peninga í Litla-Hraun þar sem fyrrum foringi Samfylkingar, Margrét Frímannsdóttir ræður ríkjum. Þetta er glórulaus meðferð á almannfé þar sem fléttast saman kjördæmapot og prívathagsmunir samfylkingarfólks.

Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Sunnlendinga þarf á stuðningi Margrétar að halda til að eiga von um endurkjör. Ekki aðeins er Margrét fyrrum þingmaður á svæðinu heldur stýrir hún einum stærsta vinnustað kjördæmisins. Án stuðnings Margrétar er Björgvin búinn að vera sem þingmaður. Björgvin er  í fjárlaganefnd alþingis og notar aðstöðu sína til að kaupa sér pólitískt framhaldslíf með því að senda almannafé til Litla-Hrauns.

Samfylkingin stundar linnulaus sérgæskusjórnmál og lætur almannahagsmuni lönd og leið.

 


mbl.is Fangar ekki sammála fangelsismálastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samspillingin í öllu sínu veldi.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 4.12.2011 kl. 18:14

2 identicon

Baugsfylkingin sér um sína.  Hverjum heilvita myndi detta slíkt í hug..??

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.12.2011 kl. 19:18

3 identicon

Árni Johnsen.

Björgvin Sigurðsson.

Róbert Marshall.

Allir þessir menn sitja á þingi á ábyrgð sunnlendinga.

Karl (IP-tala skráð) 4.12.2011 kl. 20:07

4 identicon

Þetta er nú skrítið blogg hjá þér við frétt Moggans!

Hverjir vilja byggja fangelsi á Hólmsheiði?   Ekki fangarnir, þeir vilja nota Litla-Hraun og jafnvel Sogn undir kvennafangelsi, en gæsluvarðhald á höfuðborgarsvæðið.  Eru þá fangarnir með kjördæmapot?  Er Samfylkingarfóbían komin á það hátt stig að þú álítir fangana vera í henni?

Ef Litla-Hraun er einn stærsti vinnustaður á Suðurlandi eins og þú segir, er þá nokkuð að því að nýta aðstöðuna þar enn betur? Hýtur ekki að felast í því stærðarhagkvæmni?

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 5.12.2011 kl. 01:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband