Sunnudagur, 20. nóvember 2011
ESB-sinnar í skjóli Björns Bjarnasonar
Björn Bjarnason er annar höfundur nefndartillögu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um að hlé verði á aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið og þeim ekki haldið áfram nema að undangengnu þjóðaratkvæði. ESB-sinnar hanga í pilsfaldi Björns enda vita þeir að meirihluti landsfundarins vill afturkalla umsóknina og þar með slíta viðræðum.
Spurningin á landsfundi Sjálfstæðisflokksins er því þessi: hvort verður aðildarumsóknin skotin eða hengd?
Hitt er svo annað mál að Bjarni Benediktsson mun tapa formennskunni ef tillaga um að hætta aðildarviðræðum verður ekki samþykkt. Í Icesave var Bjarna ekki treystandi fyrir húshorn; ekkert nema málefnaleg handjárn er nóg í ESB-málinu.
Umsókn um aðild verði dregin til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já Páll, það verður þá að nota öðruvísi og strekari handjárn en notuð eru í VG
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 13:36
Niðurstaða er fengin úr kosningunni og þá er hún dæmd ógild eða endurtekin þar til rétt niðurstaða fæst. Eru þetta fréttir af fundi Samfylkingarinnar?
Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 13:45
Mæli með hún verði skotin.
Örn Ægir (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 14:31
Bjarni Ben var kosinn sem formaður með 55% atkvæða. Þannig að þú hefur ekki hugmynd um hvað þú ert að tala um.
Sleggjan og Hvellurinn, 20.11.2011 kl. 16:37
Það fór sem Elín spáði, já, nú er það ljóst:
Kosningin var dæmd ógild, því hún þótti ekki gefa nógu loðna afstöðu og var því endurtekin ... þannig að úr yrði samfylkt moðsuða og opin í báða enda.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 16:46
Þessum flokki er ekki treystandi fyrir húshorn, frekar en kvígu á svelli, svo vitnað sé í prestinn sem í stólinn sté og Pál postula sjálfan.
Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 16:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.