Þriðjudagur, 18. október 2011
Eymdarvísitalan og Ísland
Eymdarvísitalan mælir atvinnuleysi lagt saman við verðbólgu. Rökin fyrir vísitölunni er að báðar breyturnar fela í sér samfélagslega sóun. Eymdarvísitalan hefur ekki verið hærri í Bandaríkjunum og Bretlandi um árabil.
Verðbólga er á uppleið í engilsaxnesku hagkerfunum og atvinnuleysi er stöðugt. Í Evrópusambandinu er óleyst skuldakreppa og gjaldmiðlasamstarf í uppnámi.
Af Íslandi er á hinn bóginn allt gott að frétta, þökk sé fullveldi og krónu.
5,2% verðbólga í Bretlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þess vegna eigum við ekki samleið með eymingjunum í Esb.
Helga Kristjánsdóttir, 18.10.2011 kl. 12:46
Það gildir það sama um eymdarvísitölu og aðra statistikk að hún segir ekki alla söguna. Atvinnuþátttaka mótast m.a. af kúltúr og hefðum og hefur áhrif á hvernig atvinnuleysi mælist í prósentum.
Það væri fróðlegt að bera Ísland saman við Möltu, sem aðildarsinnar líta oft til, sem fyrirmyndar. Atvinnuþátttaka kvenna er 82,8% hér en aðeins 43,6% á Möltu. Það þýðir að jafn mikið atvinnuleysi í báðum löndum, sem hlutfall af heildarfjölda, sýndi meira atvinnuleysi á Íslandi, mælt í prósentum.
Haraldur Hansson, 18.10.2011 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.