Mánudagur, 29. ágúst 2011
Grikkir hóta og er hótað
Finnar hóta Grikkjum að lána þeim ekki nema gegn tryggingu. Grikkir hóta lánadrottnum sínum að fái þeir 90 prósent þátttöku í afskriftum á grískum skuldum munu þeir ekki greiða af lánum sínum í haust.
Seinni björgunarpakkinn til Grikkja gerir ráð fyrir að lánveitendur afskrifi 21 prósent af höfuðstól lánanna. Það gefur auga leið að ríkissjóður sem stendur ekki undir skuldum getur tæplega boðið veð gegn nýjum lánum.
Eftir að uppvíst varð um kröfu Finna komu óðara aðrar þjóðir í bræðralagsbandalaginu Evrópusambandinu og gerðu sömu kröfur til Grikkja um tryggingu.
Íslendingar eru best settir fyrir utan reiptogið í Evrópusambandinu.
Athugasemdir
Nú eru Þjóðverjar farnir að stinga við fótum og neita að standa undir óráðsíu annarra. Þessar raddir eru farnar að síast inn í eyru Angelu Merkel. Gangi hún gegn vilja þjóðarinnar jafngildir það pólitísku sjálfsmorði. Svo vitlaus er hún ekki.
Ragnhildur Kolka, 29.8.2011 kl. 09:44
Kemur Sheikh Al-Thani evrunni til "bjargar"?
Guðmundur Ásgeirsson, 29.8.2011 kl. 14:58
Minni á ólöglega kröfu bræðralagsbandalagsins í ICESAVE gegn okkur.
Elle_, 29.8.2011 kl. 23:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.