Sænskir kratar hafna evru

Jafnaðarmenn í Svíþjóð börðust fyrir upptöku evru en þjóðin hafnaði því að fórna sænsku krónunni árið 2003. Síðan hefur annað slagið komið upp í umræðunni að greiða atkvæði á ný um evru. Ekki lengur. Talsmaður sænskra jafnaðarmanna í efnahagsmálum útilokar að Svíar sæki um evru-aðild næstu áratugina.

Evruland 17 ríkja stendur í ljósum logum í Mið-Evrópu. Þau Evrópusambandsríki sem ekki eru í evru-samstarfi prísa sig sæl.

Össur utanríkis nagar aftur þröskuldinn í Brussel og biður um hraðferð inn í brennandi evruhús. Dómgreind jafnaðarmanna er misskipt eftir þjóðum, það sannar Samfylkingin á Íslandi. 


mbl.is Sænskir jafnaðarmenn vilja ekki evru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband