Þorsteinn Páls viðurkennir aðlögunarferlið

Aðildarsinnar á Íslandi láta iðulega eins og samningaviðræður við Evrópusambandið séu óskuldbindandi og færu í þjóðaratkvæði þegar samningur liggur fyrir. Í reynd býður Evrópusambandið aðeins upp aðlögun þar sem umsóknarríki aðlaga sig regluverki Evrópusambandsins.

Stundum viðurkenna aðildarsinnar alveg óvart að Ísland er í aðlögunarferli. Það gerir Þorsteinn Pálsson í viðtali í Pressunni í dag þegar hann segir

ráðherrar VG hafa nú þegar stöðvað framgang viðræðnanna á ákveðnum sviðum.

Þorsteinn Pálsson er í samninganefnd Íslands, skipaður þar af Össuri, en ekki ráðherrar Vinstri grænna. Ef ferlið er aðeins viðræður en ekki aðlögun gætu ráðherrar ekki stöðvað ferlið.

Ástæða er að þakka Þorsteini hreinskilnina, þótt hún hafi verið óvart.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi lygaveita ESB liða að um viðræður er aðeins að ræða er full ástæða þess að almenningur eigi að segja hingað og ekki lengra og að óháð rannsókn fari fram á hvað er í raun og veru að gerast.  Eðlileg og heiðarleg krafa óháð því hvort að fólk er með eða á móti inngöngu í sambandið. 

Óheiðarlega vinnubrögð og hreinar lygar stjórnvalda og þeirra aftaníossa er eitthvað sem aldrei á að líða sama hverjir eiga í hlut og um hvaða málefni er að ræða. 

ESB sinnar munu aldrei fallast á slíkt vopnahlé þar sem gengið verður í málið af óháðum fagmönnum.  -  Hverju skyldi sæta .. ??

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband